Rektorarnir svara fyrir sig Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. september 2026 11:21 Rektorarnir svara orðum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um styrki frá ESB. Rektorar allra háskóla á Íslandi segja fullyrðingu í Morgunblaðinu um að Evrópusambandið hafi keypt sér hollustu fræðimanna sem hafi aflað sér styrkja úr evrópskum samkeppnissjóðum ranga. Þeir segja erlenda rannsóknastyrki ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein rektoranna í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið er viðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Spursmálum sem síðan var unnin grein upp úr í Morgunblaðinu, undir fyrirsögninni: Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu. Vísar Hannes þar til þeirra Baldurs Þórhallssonar stjórnmálafræðiprófessors og Magnús Árna Skjöld Magnússon prófessor við Háskólann á Bifröst. Segir Hannes í Spursmálum að margir þeirra sem séu helstu áróðursmeistarar fyrir Evrópusambandið á Íslandi séu beinlínis á launum hjá Evrópusambandinu. Vísar hann meðal annars til Jean Monet-styrki Evrópusambandsins sem Baldur og Magnús hafi hlotið, Baldur árið 2008 og Magnús árið 2025. Sagðist Hannes ekki gera athugasemd við að Evrópusambandið veiti slíka styrki en að mikilvægt væri að fjárhagsleg tengsl þeirra sem taki virkan þátt í umræðunni um aðild Íslands séu almenningi ljós. „Í grein sem birtist nýlega í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu“ er því haldið fram að með styrkjum úr evrópskum samkeppnissjóðum hafi Evrópusambandið keypt sér hollustu þeirra fræðimanna sem öfluðu styrkjanna. Sú ályktun er röng,“ skrifa rektorar í öllum háskólum landsins í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þeir segja að rannsóknarniðurstöðum sé oft vantreyst þegar rannsóknin sem um ræðir sé beint fjármögnuð af hagsmunaaðilum. Enda sé þá auðvelt að ímynda sér að henti niðurstöður þeim ekki þá verði þeim stungið ofan í skúffu. „Það sem hér um ræðir er hins vegar sókn íslensks háskólafólks í almennar, skipti-, nýsköpunar- og rannsóknaáætlanir ESB. Allir háskólar landsins, auk ýmissa stofnana og fyrirtækja, hafa hlotið slíka styrki. Ísland hefur um árabil verið meðal þeirra ríkja sem nýta hvað mest þau tækifæri til nemenda- og starfsmannaskipta sem evrópskt samstarf býður upp á. Jafnframt hafa íslenskir rannsakendur á öllum fræðasviðum sótt með góðum árangri í alþjóðlega samkeppnissjóði Evrópu.“ Rektorarnir segja innlenda og erlenda rannsóknastyrki fjármagna verkefni sem hafi staðist faglegt mat óháðra sérfræðinga. Í vísindasamfélaginu séu styrkir veittir á grundvelli gæða hugmynda, hæfni rannsóknahópa og líkinda þess að verkefnin skili nýrri þekkingu. Það eigi jafnt við um íslenska sjóði og alþjóðlega. Segja ástæðu til að fagna árangri en ekki tortryggja „Raunar er árangur íslenskra vísindamanna í alþjóðlegum samkeppnissjóðum einn skýrasti mælikvarðinn á alþjóðlega samkeppnishæfni þeirra. Þegar rannsakendur hljóta styrki úr Horizon Europe eða öðrum alþjóðlegum samkeppnissjóðum er það vegna þess að þeir hafa sannfært alþjóðlegt matsteymi um að rannsóknir þeirra standist samanburð við það besta sem gerist á viðkomandi fræðasviði.“ Íslensk stjórnvöld verðlauni sérstaklega háskóla sem fái alþjóðlega styrki í gegnum fjármögnun háskólanna og þetta sé svipað og gerist í þeim ríkjum sem Íslendingar beri sig helst saman við. Rektorarnir segja mikilvægi þessara styrkja augljóst þegar horft sé til innlendrar fjármögnunar. Á síðasta ári hafi borist 381 gild umsókn í Rannsóknasjóð Rannís, helsta samkeppnissjóð landsins fyrir grunnrannsóknir. Aðeins 64 verkefni hafi hlotið styrk, eða innan við sautján prósent umsókna. Rektorarnir segja að þó Rannsóknarsjóður gegni lykilhlutverki fyrir íslensk vísindi dugi hann ekki til einn og sér til að fjármagna rannsóknarstarfsemi sem íslenskt samfélag þarfnist. Alþjóðlegir styrkir séu því nauðsynleg viðbót við innlenda fjármögnun og segja þeir að á hennar yrði vísindastarf á Íslandi fátæklegt. „Erlendir rannsóknastyrkir eru ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið. Þeir eru viðurkenning á faglegum gæðum rannsókna og getu rannsakenda til að standast alþjóðlegan samanburð. Það er ástæða til að fagna þeim árangri, ekki tortryggja hann. Góður árangur við að afla styrkja tryggir að íslenskt háskólasamfélag geti verið í fremstu röð. Þannig rennur ávinningurinn til íslensks samfélags alls.“
Háskólar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira