Handbolti

Danskt stór­lið búið að kló­festa Elínu Klöru

Aron Guðmundsson skrifar
Elín Klara fagnar sænska meistaratitlinum á síðasta tímabili þar sem að hún skaraði fram úr.
Elín Klara fagnar sænska meistaratitlinum á síðasta tímabili þar sem að hún skaraði fram úr. Mynd/Savehof

Ís­lenska lands­liðs­konan í hand­bolta, Elín Klara Þor­kels­dóttir er orðin leik­maður danska stór­liðsins Ikast og semur við félagið til þriggja ára.

Elín Klara gengur í raðir Ikast eftir yfirstandandi tímabil en hún hefur upp á síðkastið slegið í gegn með sænska liðinu IK Sävehof. 

Þessi öflugi 21 árs gamli leikmaður átti skínandi tímabil með IK Sävehof á síðustu leiktíð sem var hennar fyrsta úti í atvinnumennskunni. 

Elín Klara varð sænskur meistari með liðinu og ekki nóg með það heldur var hún einnig valinn besti leikmaður deildarinnar og besti leikstjórnandinn í deildinni. 

Nú hefur næsta skref á hennar ferli verið ráðið. Elín Klara gengur til liðs við eitt af toppliðum Danmerkur, Ikast, í afar sterkri deild. 

„Ég er mjög og stolt af því að semja við Ikast og hlakka mjög til að taka þetta næsta skref á mínum ferli og spila í Danmörku. Ikast er stórt félag með mikinn metnað og stór markmið,“ segir Elín Klara í tilkynningu Ikast um félagsskiptin. 

Þetta sé gott tækifæri fyrir hana til þess að þróa sinn leik enn frekar og reyna fyrir sér í nýju umhverfi.

Forráðamenn Ikast eru hið minnsta yfir sig ánægðir með að vera búnir að tryggja sér þjónustu Elínu Klöru frá og með næsta tímabili.

„Það er frábært að sjá Elínu Klöru taka skrefið frá íslensku deildinni og hafa náð að láta svona mikið til sín taka á fyrsta tímabili hennar í Svíþjóð. Hún hefur að sjálfsögðu skorað mikið af mörkum en einnig sýnt mikil gæði sem leikstjórnandi,“ segir Daniel Gronhoj, stjórnandi hjá Ikast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×