„Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Jón Þór Stefánsson skrifar 13. september 2026 09:57 Þorbjörg minnist á mál Mohamads Kourani, en nefnir hann þó ekki á nafn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segir það almannahagsmunamál að erlendum sakamönnum sé vísað úr landi um leið og þeir hafi lokið afplánun. Það sé betra en að þeir komi aftur út í samfélagið. „
Í vikunni sem leið var þekktum sakamanni vísað úr landi með 30 ára endurkomubann til Íslands og raunar til allra 29 Schengen ríkjanna,“ skrifar Þorbjörg á Facebook, og vísar þar með til máls Mohamads Th. Jóhannessonar, sem áður hét Mohamad Kourani. Honum var veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað einn þriðja af átta ára fangelsisdómi og var fylgt til Sýrlands. Hann var sakfelldur sumarið 2024 fyrir tilraun til manndráps auk fjölda annarra brota. Í færslu sinni bendir Þorbjörg á að brotvísunin eigi sér stað vegna tímabundinnar heimildar í lögum. „Fram til þessa hefur framkvæmdin alla jafna verið sú að þeir afpláni helming dóms og hluta þess tíma fái þeir að vera í úrræðum eins og Vernd eða undir rafrænu eftirliti. Með þessari lagaheimild fara nokkrir tugir fanga af landi brott strax að lokinni sinni afplánun,“ skrifar hún. „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu og því eðlilegt að brottvísun bíði strax eftir afplánun.“ Í færslunni fjallar Þorbjörg einnig um stöðu fangelsa hér á landi með almennari hætti. Hún segir að erlendum ríkisborgurum í íslenskum fangelsum hafi fjölgað mikið á undanförnum árum. Jafnframt segir hún að staða fangelsana hafi verið erfið árum saman, í þeim eigi fangar að geta losnað undan vímuefnaneyslu, og þá eigi að vera hægt að aðskilja erfiða fanga frá öðrum. „Með þessari tímabundnu lagaheimild eru boðunarlistar í fangelsi landsins styttir. Þetta er tímabundin aðgerð en í mínum huga bæði rétt og þörf. Við erum að rjúfa kyrrstöðu í fangelsismálum. Það verður ekki gert í einu handtaki en við nálgumst verkefnið jafnt með skammtímaaðgerðum og langtímaaðgerðum.“
Mál Mohamad Kourani Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fangelsismál Sýrland Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira