Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Lovísa Arnardóttir skrifar 14. september 2026 08:07 Björgunaraðgerðir eru erfiðar við ferjuna. Myndin er tekin að björgunaraðilum á vettvangi. Vísir/EPA Enn er 129 manns saknað eftir að ferju hvolfdi í Jövuhafi við Indónesíu í slæmu veðri í gær. Búið er að bjarga um 108 manns. Sex í það minnsta eru látin. Alls voru um 243 um borð í ferjunni sem var að fara frá Surabaya í Austur-Jövu til Banjarmasin í Suður-Kalimantan-héraði á Borneo-eyjunni.
Í frétt AP kemur fram að skipstjórinn hafi greint frá því að öldur hafi verið allt að þriggja metra háar áður en hann sendi út neyðarkall. Síðar hafi stjórnvöld fengið veður af því að bátnum hafi hvolft. Þar kemur jafnframt fram að báturinn hafi verið í um 148 kílómetra fjarlægð frá Banjarmasin. Í frétt Reuters segir að af þeim 243 sem voru um borð hafi 213 verið farþegar og 30 í áhöfn. Þá segir að í bátnum hafi einnig verið um 89 farartæki. Í frétt AP sem birt var í gær má sjá myndir sem teknar voru af björgunarsveitum af bátnum hvolfdum sem flaut á vatninu. Í frétt Reuters um sama mál kemur fram að stjórnvöld hafi sent á vettvang um sautján skip, fimm þyrlur og flugvél. Slasaður farþegi fluttur á spítala í Banjarmasin í Indónesíu. Vísir/EPA Hvass vindur og háar öldur hafa torveldað leitina að sögn Mohammad Syafii, yfirmanns almannavarnastofnunar Indónesíu, í frétt Reuters en þar kemur fram að almannavarnastofnunin hafi sent að minnsta kosti 622 starfsmenn, 17 skip, fimm þyrlur og flugvélar til að leita að þeim sem enn er saknað. Sum skipanna séu komin á vettvang en björgunarfólki hafi reynst erfitt að komast inn í skipið sem hvolfdi. „Við myndum einnig senda starfsfólk með sérþekkingu á neðansjávarbjörgun en aðstæður eins og þær eru nú leyfa okkur það ekki,“ sagði hann. „Á meðan við bíðum eftir að veðurskilyrði batni erum við að finna fleiri starfsmenn með sérþekkingu,“ sagði hann og bætti við að tala látinna væri enn sex. Þriðja ferjuslysið Samgönguráðherrann Dudy Purwagandhi sagði að ferjan sem valt hefði rúmt fyrir 500 farþega og því hefði hún ekki verið yfirfull. Indónesía reiðir sig á ferjur til samgangna milli 17.000 eyja landsins, en nýlega hafa orðið nokkur slys um borð í slíkum ferjum. Að minnsta kosti 211 manns var bjargað úr indónesískri ferju sem kviknaði í nærri Balí í síðasta mánuði. Einn fannst látinn og fjögurra annarra var enn saknað. Atvikið átti sér stað innan við tveimur vikum eftir að eldur kom upp í annarri indónesískri ferju, Mutiara Sentosa 2, undan meginlandseyjunni Jövu. Að minnsta kosti fimm létust í þeim eldsvoða. Þá er einnig stutt síðan eldur gereyðilagði farþegaferju á Filippseyjum. Að minnsta kosti 76 létust í þeim eldsvoða og enn er að minnsta kosti tíu manna saknað.
Indónesía Filippseyjar Hafið Tengdar fréttir Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Í það minnsta átta eru látin og 18 er saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur í gær. Alls voru 270 farþegar um borð í ferjunni sem hvolfdi við strendur eyjunnar þar sem Tyrkir hafa yfirráð. 31. ágúst 2026 07:43 Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Tuttugu og átta er enn saknað eftir að kviknaði í ferju undan ströndum Indónesíu í gær. Tala látinna er komin í fimm en um borð voru 232 farþegar og 39 manna áhöfn samkvæmt farþegalista ferjunnar. 3. ágúst 2026 11:03 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira
Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Í það minnsta átta eru látin og 18 er saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur í gær. Alls voru 270 farþegar um borð í ferjunni sem hvolfdi við strendur eyjunnar þar sem Tyrkir hafa yfirráð. 31. ágúst 2026 07:43
Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Tuttugu og átta er enn saknað eftir að kviknaði í ferju undan ströndum Indónesíu í gær. Tala látinna er komin í fimm en um borð voru 232 farþegar og 39 manna áhöfn samkvæmt farþegalista ferjunnar. 3. ágúst 2026 11:03