Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. september 2026 21:08 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til í útkall langt á hafi úti í dag. Um var að ræða veikindi skipverja um borð í norsku línuveiðiskipi sem statt var töluverðan spöl norðvestur af landinu. Þetta er annan daginn í röð sem Gæslan er kölluð langt á haf út.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Gæslunni hafi borist útkall frá skipstjóra norska skipsins rétt fyrir hádegi í dag. Báðar þyrlur hafi verið sendar af stað en önnur hafi lent á Ísafirði til þess að vera til taks ef þurfa skyldi. Skipið hafi siglt inn í íslenska efnahagslögsögu til þess að mæta þyrlunni og hafi þau mæst 109 sjómílur norðvestan af Bjargtöngum, ysta oddi Látrabjargs. Aðgerðin hafi gengið vel en skipverjinn hafi verið hífður upp í þyrluna sem flaug með hann til Reykjavíkur. Þyrlan hafi lent á Reykjavíkurflugvelli klukkan hálf þrjú þar sem sjúkrabíll beið og flutti manninn til aðhlynningar. Óvenju mörg útköll lengst á hafi úti Ásgeir segir að óvenju mörg útköll hafi borist Landhelgisgæslunni upp á síðkastið þar sem þyrlan er kölluð langt á haf út. Síðast í gær sótti þyrla Gæslunnar veikan mann um borð í erlent þjónustuskip sem statt var í um tvö hundruð sjómílna fjarlægð frá landi. „Ef maður lítur yfir tölfræðina eru útköll langt úti á sjó ekki mörg á ári en þau hafa verið óvenju mörg núna á stuttum tíma,“ segir Ásgeir og að um röð tilviljana sé að ræða. Þegar um útköll úr slíkri fjarlægð er að ræða séu yfirleitt báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar sendar af stað.
Landhelgisgæslan Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira