Samtali haldið áfram við Wolt sendla sem lögðu niður störf Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. september 2026 15:02 Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir samtalið halda áfram við sendla á vegum fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir að öllum ábendingum frá sendlum á vegum fyrirtækisins sé tekið alvarlega. Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í dag og segja fyrirtækið hafa lækkað laun sín um fjörutíu prósent á einu ári.
Ríkisútvarpið greindi frá því fyrr í dag að sextíu sendlar hefðu lagt niður störf í morgun og safnast saman fyrir utan höfuðstöðvar Wolt á Íslandi í Ármúla. Sendlarnir segja að laun þeirra séu lág og að þau hafi lækkað um tæpan helming á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kastljósið beinist að launakjörum Wolt sendla en ASÍ sagði í febrúar á þessu ári að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningsbundnum réttindum. „Við hjá Wolt tökum ábendingum sendla alvarlega og leitum nú eftir opnu og uppbyggilegu samtali við sendlana þar sem við getum farið yfir stöðuna í sameiningu. Við virðum rétt allra til að koma áhyggjum sínum á framfæri og mótmæla með friðsamlegum hætti. Við erum að fara yfir þau mál sem hafa komið fram og viljum ræða þau beint við sendlana til að skilja betur þeirra sjónarmið og hvað megi bæta,“ segir Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi í yfirlýsingu til Vísis. Hann segir markmið fyrirtækisins vera að bjóða fyrirkomulag sem sameini sveigjanleika, gagnsæi og tekjumöguleika til lengri tíma. Sendlar sjái fyrirfram hvað þeir fái greitt fyrir hverja sendingu áður en þeir samþykki hana. Þannig geti þeir tekið upplýsta ákvöðun um hvaða sendingar þeir taka að sér og hvenær þeir sinni þeim. „Við söfnum reglulega ábendingum frá sendlum og nýtum þær til að bæta upplifun þeirra af því að nota Wolt. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 af 5 að meðaltali árið 2025. Þótt niðurstaðan sé jákvæð breytir hún ekki því að taka þarf þær áhyggjur sem nú hafa komið fram alvarlega. Við munum halda samtalinu við sendlana áfram og fara yfir með þeim hvað hægt sé að gera betur.“
Heimsendingarþjónusta Kjaramál Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Samtali haldið áfram við Wolt sendla sem lögðu niður störf Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samtali haldið áfram við Wolt sendla sem lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira