„Hversu mikil pressa var á honum?“ Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2026 16:31 Dagur Orri Garðarsson gæti elt Bjarka bróður sinn út í atvinnumennsku áður en langt um líður. Pabbi þeirrra er Garðar Jóhannsson, fyrrverandi atvinnumaður. Vísir/Anton Brink Framherjinn Dagur Orri Garðarsson spilar líklega ekki mikið lengur hér á landi þó að ekkert hafi orðið af því að hann yrði seldur frá Val til Slóveníu í síðustu viku. Sérfræðingar Stúkunnar segja hann verðskulda að komast út í atvinnumennsku.
Dagur Orri, sem er 21 árs, kom til Vals frá Stjörnunni síðasta vetur og hefur skorað fimm mörk í Bestu deildinni á tímabilinu, eftir sextán mörk sem lánsmaður hjá HK í fyrrasumar. Hjá Val þurfti hann að leysa af hólmi Danann Patrick Pedersen sem missti af stórum hluta tímabilsins í ár vegna hásinarslits. „Hversu mikil pressa var á honum í byrjun móts, að þurfa að vera arftaki Patrick Pedersen? Þetta er versta hlutskipti sem maður getur ímyndað sér: „Heyrðu já, þú átt að halda uppi markaskoruninni í staðinn fyrir besta framherja í sögu efstu deildar.“ En hann hefur aldrei misst dampinn, hægt og rólega lært á deildina, er byrjaður að skora mörk og verðskuldað að fá þessa athygli,“ sagði Baldur Sigurðsson í Stúkunni á þriðjudagskvöld. Klippa: Stúkan - Dagur Orri góð söluvara Dagur Orri var eins og fyrr segir í sigti slóvenska félagsins Zilina en samkvæmt Fótbolta.net hafnaði hann tilboði félagins sem hafði þá samið við Val um kaupverð. Áður hafði Hjörvar Hafliðason rætt um það í Dr. Football að Dagur Orri væri mjög ósáttur við að Valur hefði hafnað 30 milljóna króna tilboði frá danska B-deildarliðinu Fredericia. Fjórar umferðir eru eftir af Bestu deildinni en sérfræðingar Stúkunnar voru sammála um að líklegt væri að Dagur Orri myndi svo kveðja Val í vetur. „Skandinavía er þægilegri í vetrarglugganum, að fara út til Noregs eða Svíþjóðar, og það þarf ekki að koma neinum á óvart ef hann fengi tækifæri til að fara þangað í janúar,“ sagði Bjarni Guðjónsson.
Besta deild karla Valur Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira