Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Telma Tómasson skrifar 18. september 2026 11:40 Hádegisfréttir verða sagðar á slaginu tólf. vísir Fjölbreyttur hádegisfrétta tími er framundan á Bylgjunni á slaginu tólf. Þar verður fyrst greint frá stöðunni í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, en fundur með ríkissáttasemjara hefst klukkan tólf. Ekki hefur verið fundað formlega í deilunni í nokkuð langan tíma, en samtöl og samráð hafa þó farið fram. Gerð verður tilraun til að afstýra verkfalli, sem að óbreyttu mun hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september.
Sagt verður einnig frá því að níu menn hafa verið ákærðir vegna Straumsvíkurmálsins svonefnda, sex erlendir og þrír íslenskir ríkisborgarar. Mennirnir eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, en málið snýst um innflutning á 106 kílóum af kókaíni með flutningaskipi frá Brasilíu í júní síðast liðnum. Þeir eru allir í gæsluvarðhaldi. Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 18. september 2026 Einnig verður greint frá því að sífellt fleiri ungmenni viðurkenna ölvunarakstur í viðhorfskönnun Samgöngustofu og hlutfall þeirra sem segjast hafa ekið eftir að hafa fengið sér fleiri en einn drykk nálgast sögulegt hámark. Sérfræðingur segir þróunina áhyggjuefni og telur þörf á átaki. Fjallað verður um alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi, en lögreglan telur sig vera komna með skýra mynd af málsatvikum. Og þá er það blessuð moskítóflugan sem virðist hafa gufað upp, en ekkert hefur sést til hennar í sumar. Rætt er við prófessor í líffræði en hann segir þó enn ekki hægt að afskrifa hana alveg. Þetta og fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar. Umsjónarmaður er Telma Tómasson.
Hádegisfréttir Bylgjunnar Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Sjá meira