Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München Andri Broddason skrifar 18. september 2026 20:23 Michael Olise átti stórleik í kvöld gegn Union Berlin í þýsku úrvalsdeildinni. Alexander Hassenstein/Getty Images Stórlið Bayern München tók á móti Union Berlin í fjórðu umferð þýsku úrvalsdeildar karla í fótbolta í kvöld. Union Berlin var fyrir leikinn að leita að sínum fyrsta sigri en liðið þarf að bíða lengur þar sem Bayern München vann leikinn 7-0.
Leikurinn var vægast sagt ósanngjarn og átti lið Union Berlin einfaldlega erfitt með að koma boltanum fram yfir miðju. Bayern München sýndi gríðarlega yfirburði og náði Jamal Musiala að brjóta ísinn fyrir Bayern með glæsilegu skoti á átjándu mínútu. Á 38. mínútu var brotið á Michael Olise inni í teig Berlin og var víti dæmt. Harry Kane steig á vítapunktinn og skoraði örugglega úr því. Fimm mínútum síðar náði svo Michael Olise að skora sjálfur með glæsilegu skoti í fjærhornið. Staðan var því 3-0 í hálfleik en heimamenn í Bayern München voru ekki nálægt því að hætta að skora. Á 54. mínútu skoraði Harry Kane sitt annað mark með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Olise. Ismael Saibari nýtti tækifærið og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bayern München en hann var keyptur til félagsins í sumar. Nánast í næstu sókn skoraði Olise sitt annað mark og sjötta mark Bayern eftir að markmaður Union Berlin, Frederik Ronnow, var kominn í lélega stöðu úr markinu. Olise fullkomnaði svo þrennuna sína stuttu síðar með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Það reyndist síðasta mark leiksins og vann Bayern München sannfærandi 7-0 sigur. Bayern er þá enn taplaust í þýsku úrvalsdeildinni en liðið gerði 0-0 jafntefli við Schalke.
Þýski boltinn Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira