Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Lovísa Arnardóttir skrifar 20. september 2026 13:03 FÍB gagnrýnir aðgerðaleysi Hönnu Katrínar í bílastæðamálum. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir að stjórnvöld hafi lítið sem ekkert aðhafst vegna bílastæðagjalda þrátt fyrir loforð um að gera það fyrir um ári síðan. Í tilkynningu gagnrýnir félagið einnig að engar stórar breytingar hafi verið gerðar á innheimtu vangreiðslugjalda vegna innheimtu bílastæðagjalda.
Það eina sem hafi breyst, frá boðuðum aðgerðum ráðherra í janúar, sé að innheimtufyrirtækin hafi bætt við ítarlegri texta með smærra letri og að reikningar fylgi nú kröfum í heimabanka. Í tilkynningu sem birt var fyrir helgi á vef félagsins er bent á að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafi fyrr á þessu ári boðað aðgerðir vegna málsins. Skerpa ætti á lögum um markaðssetningu, breyta reglugerð um umferðarmerki og setja upp vefsíðu með yfirliti um öll gjaldskyld bílastæði. Þá sagði hún einnig koma til greina að setja eina heildstæða reglugerð um gjaldskyld bílastæði. Ekkert aðhafst FÍB segir að enn hafi vefsíða með yfirliti um gjaldskyld bílastæði ekki verið sett upp og engin reglugerð hafi verið sett um gjaldskyld bílastæði eða umferðarmerki. „Stjórnvöld hafa síðan ekkert aðhafst gagnvart ósvífnustu innheimtunni, hjá sínu eigin fyrirtæki, Isavia. Þar eru miskunnarlaust rukkaðar 500 krónur fyrir hverja mínútu umfram fimm í brottfararrennunni á Keflavíkurflugvelli,“ segir í tilkynningunni. Þar er bent á að Hanna Katrín hafi í janúar haldið fund þar sem farið var yfir stöðuna og aðgerðir kynntar, á sama tíma hafi Neytendastofa gefið út leiðbeiningar um merkingar, skilmála og greiðslufyrirkomulag á gjaldskyldum bílastæðum. Þá hafi ný lög um markaðssetningu tekið gildi í maí en þau hafi lítil sem engin áhrif haft á það sem kvartað er undan, það er vangreiðslugjöldin. „Aftur á móti sektaði Neytendastofa Parka og Easypark í ágúst vegna ófullnægjandi upplýsinga og merkinga. Aðgerðir Neytendastofu virðast alfarið snúa að smáa letrinu,“ segir í tilkynningunni.
Bílastæði Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Neytendur Bílar Tengdar fréttir Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var. 16. september 2026 16:20 Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að nýfallinn dómur í Noregi vegna ólögmætra gjalda á bílastæði geti verið fordæmisgefandi á Íslandi. Innheimtufyrirtækinu Riverty var gert skylt að greiða norskum bílstjórum hundruð milljóna norskra króna. 14. september 2026 18:11 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var. 16. september 2026 16:20
Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að nýfallinn dómur í Noregi vegna ólögmætra gjalda á bílastæði geti verið fordæmisgefandi á Íslandi. Innheimtufyrirtækinu Riverty var gert skylt að greiða norskum bílstjórum hundruð milljóna norskra króna. 14. september 2026 18:11