SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar 20. september 2026 18:00 Eitt er það sem blasir við varðandi núverandi stöðu innan SÁÁ og það er hvernig stjórn félagsins umgengst gagnsæi. Stjórnin hefur að stórum hluta vísað opinberri umræðu um alvarlegan ágreining innan heilbrigðisþjónustunnar frá sér sem „starfsmannamálum“ eða neitað að tjá sig. Persónuleg málefni starfsfólks eiga auðvitað að njóta trúnaðar en hvernig stjórnin beitir valdi sínu, hvar mörk hennar gagnvart faglegri stjórn heilbrigðisþjónustunnar liggja og hvernig milljörðum úr ríkissjóði er ráðstafað er ekki starfsmannamál. Af hverju ekki félag til almannaheilla? SÁÁ er aðildarfélag Almannaheilla. Samkvæmt lögum þeirra gangast aðildarfélög undir siðareglur samtakanna sem stuðla að því að auka gagnsæi, efla góða stjórnarhætti og faglegt starf. Reglurnar gera kröfu um skýrar og áreiðanlegar upplýsingar um starfsemi og segja beinlínis að upplýsingar um fjárhag og rekstur skuli vera gagnsæjar og settar fram á einfaldan og skýran hátt. Í því samhengi vekur athygli að á vef SÁÁ eru birtar ítarlegar ársskýrslur, en þar er ekki að finna ársreikninga samtakanna. Samtök sem reka sjúkrahúsþjónustu fyrir opinbert fé ættu að tryggja gagnsæi um fjárhag samtakanna og hafa upplýsingar um hann aðgengilegar á vefnum. Annað sem vekur athygli er að árið 2021 tóku gildi sérstök lög um félög til almannaheilla. Skráning samkvæmt lögunum er valkvæð og Skatturinn segir að hún sé sérstaklega ætluð félögum þar sem „stærð, umfang eða eðli starfseminnar“ kallar á þær skyldur og réttindi sem lögin mæla fyrir um. Samkvæmt núverandi skráningu SÁÁ í fyrirtækjaskrá hafa samtökin ekki valið þetta félagaform. Það virðist hafa verið meðvituð ákvörðun því árið 2023 var sérstakri nefnd innan samtakanna falið að meta „kosti og galla þess að SÁÁ verði félag til almannaheilla að fullu og öllu“. Samþykktum samtakanna var jafnframt breytt að hluta með hliðsjón af lögunum en þó voru samtökin ekki skráð sem almannaheillafélag í fyrirtækjaskrá. Félag sem skráð er samkvæmt lögum nr. 110/2021 undirgengst sérstaka félagaréttarlega umgjörð um stjórnarhætti, hæfi og vanhæfi, ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra, skráningu breytinga og fjármál. Og innan mánaðar eftir samþykkt ber stjórn að birta ársreikning, skýrslu stjórnar og áritun endurskoðanda, opinberlega. (Athugið að þetta er önnur skráning en almannaheillaskrá skattsins fyrir þau félög sem tryggja styrkveitendum skattaafslátt, SÁÁ er á þeim lista.) SÁÁ hefur því annars vegar kosið að vera aðildarfélag Almannaheilla og undirgangast siðferðileg viðmið þeirra um gagnsæi og góða stjórnarhætti, — en hins vegar ekki þá sérstöku lögbundnu umgjörð um stjórnarhætti og gagnsæi sem Alþingi hefur lögleitt fyrir félög til almannaheilla. Spurningin er af hverju félagið kaus ekki að fara þá leið til að auka formfestu, traust og gagnsæi. Ríkið hafði verkfæri til að gera meiri kröfur Áhugaverðast er þó að horfa á samskipti ríkisins við SÁÁ í þessu samhengi. Í lögunum segir að ríkið, sveitarfélög og opinberar stofnanir geti gert skráningu í almannaheillafélagaskrá að skilyrði fyrir styrkjum, rekstrarsamningum og opinberum leyfum. Það vekur þá spurningu af hverju Sjúkratryggingar Íslands gerðu ekki slíka kröfu þegar gerður var nýr fjögurra ára heildarsamningur við SÁÁ, sem gefur aukið svigrúm til að forgangsraða meðferð og var kynntur með sérstakri áherslu á auknar faglegar kröfur, skýrari gæðaviðmið, árangur og kostnaðargreiningar. Þegar ríkið felur félagasamtökum slíkt fjármagn, svigrúm og ábyrgð er eðlilegt að gera jafnframt ríkari kröfur um stjórnarhætti og gagnsæi. Styðja þarf góða stjórnarhætti með skýrum reglum, gagnsæi og virku ytra eftirliti. Sjúkratryggingar þekktu söguna Stjórn SÁÁ þarf að axla ábyrgð á þeirri stöðu sem nú er komin upp. En Sjúkratryggingar Íslands þurfa líka að svara fyrir eigin ákvarðanir. Árið 2021 hóf SÍ sérstakt eftirlit með framkvæmd samnings við SÁÁ sem leiddi til tæplega 175 milljóna króna endurkröfu og svo alvarlegs ágreinings að SÍ vísaði málinu bæði til Embættis landlæknis og héraðssaksóknara. Rannsókn héraðssaksóknara var síðar felld niður, en opinberlega hefur ekki komið fram ítarlegur rökstuðningur fyrir þeirri ákvörðun. Niðurfelling sakamálarannsóknar leysir heldur ekki sjálfkrafa úr þeim stjórnsýslu- og samningságreiningi sem lá að baki kæru Sjúkratrygginga. Í ljósi þeirrar sögu er eðlilegt að spyrja hvers vegna SÍ gerði nýjan fjögurra ára samning upp á um tvo milljarða króna á ári án þess að nýta þá heimild sem lög um félög til almannaheilla veita opinberum aðilum til að krefjast skráningar og þar með formfastari stjórnarhátta og gagnsæis. Þá hefur saga SÁÁ einkennst af átökum, ekki síst átökum á milli faglegra sjónarmiða og hugmyndafræði stjórnar. Ekki má útvista aðhaldinu Þegar ríkið útvistar þjónustu útvistar það líka valdi. Með samningi við SÁÁ felur ríkið félagasamtökum ekki aðeins að veita þjónustu heldur einnig verulegt svigrúm til að forgangsraða innan hennar og ráðstafa milljörðum úr ríkissjóði. Því valdi verður að fylgja aðhald. Þegar ríkið útvistar þjónustu má það ekki útvista aðhaldinu líka. Höfundur er framkvæmdastjóri og talskona Rótarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Fíkn Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun