Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Aron Guðmundsson skrifar 23. september 2026 09:00 Ríkarður er ekki af baki dottinn og ætlar að sigra bakgarðshlaupið í maí á næsta ári. Vísir/Viktor Freyr Bakgarðshlauparinn Ríkarður Eyberg Árnason er ekki af baki dottinn og ætlar sér að hlaupa til sigurs hér á landi í maí á næsta ári og verða yngsti Íslendingurinn til að vinna Bakgarðshlaup.
Ríkarður átti frábært bakgarðshlaup í Heiðmörk um síðastliðna helgi þar sem að hann endaði í 2. sæti og hljóp 38 hringi. Frábær árangur en Ríkarður ætlaði sér sigur, frá því greindi hann í skemmtilegu viðtali á Vísi fyrr á árinu. Ríkarður gerir upp nýafstaðið bakgarðshlaup í færslu á Strava hreyfiforritinu og er ljóst að hann hefur lært mikið um sjálfan sig á hlaupum í Heiðmörk. „Aldrei grunaði mig að þetta myndi ganga svona langt en ég er þakklátur fyrir að vita núna að ég bý yfir svona geðveiki og trúið mér, ég mun koma aftur til að láta draum minn, um að verða yngsti sigurvegari í bakgarðshlaupi rætast,“ skrifar Ríkarður meðal annars á Strava. „Ég er samt nokkuð viss um að ég sé yngsti hlauparinn í heimi til að lenda í öðru sæti í Backyard Ultra en það er ekki nóg fyrir mig, ég ætla alla leið með þetta dót. Ég mun hlaupa annað bakgarðshlaup í maí og ég verð síðasti hlauparinn!“ Á 38 hringjum hljóp Ríkarður rétt tæpa 255 kílómetra en honum leið verst á fyrri stigum bakgarðshlaupsins. „Mér leið verst á níunda og tíunda hring. Leið virkilega illa en ég hljóp í gegnum vegginn, komst í gegnum nóttina og mér hefur aldrei liðið betur. Ég söng og söng allan tímann í gegnum nóttina. Allan tímann fannst mér eins og ég myndi vinna, ég kom alltaf fyrstur inn á drykkjarstöðina og leit satt best að segja best út allan tímann. Af hverju hætti ég? Af því að ég gat bókstaflega ekki gengið, 260 km er ekkert grín, ég hljóp meira en 6 heil maraþon á 2 dögum, ímyndið ykkur það bara.“ Ríkarður er þakklátur fyrir stuðninginn sem hann fékk. „Risastórar þakkir til mömmu minnar og systra og allra bestu vina minna og kærustu sem mættu og hvöttu mig áfram allan tímann.“ Þrjátíu og átta hringir Ríkarðs og 39 hringir sigurvegarans Kristjáns Karls Björnssonar, koma þeim í rækilega góða stöðu hvað varðar landsliðssæti í bakgarðshlaupum. Árangur næstu tveggja ára mun skera úr um hvaða hlauparar eru valdir í landsliðið. Eins og staðan er núna eru bæði Ríkarður og Kristján í góðri stöðu á þeim lista.
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir sagður á leið til ÍA og Martinez óð á súðum Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Eva bætti hvert metið á fætur öðru Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Bakgarðsáskorunin: Málgleðin helsti veikleikinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Dagskráin í dag: Liverpool, Man. City, PSG og Real í Meistaradeild Evrópu Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ „Ég tek því hlutverki sem mér er gefið“ Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut „Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Sjá meira