Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Stefán Árni Pálsson skrifar 23. september 2026 21:45 Cristiano Ronaldo felldi tár eftir sinn síðasta leik á HM í sumar. Getty/Omar Vega Cristiano Ronaldo íhugaði alvarlega að hætta í landsliðsfótbolta eftir HM í sumar en ákvað að halda áfram þar sem hann telur sig enn geta hjálpað Portúgal að ná meiri árangri.
Ronaldo, sem er 41 árs, staðfesti í sumar að heimsmeistaramótið 2026 yrði hans síðasta með portúgalska landsliðinu. Langtímaframtíð hans í landsliðinu var hins vegar óljós. Hann er nú í 25 manna landsliðshópi Portúgals fyrir komandi Þjóðadeild og gæti komið við sögu þegar liðið mætir Wales í Lissabon í kvöld. 🗣️ "I know what I do to be here!"Cristiano Ronaldo on if he considered retiring after the World Cup. pic.twitter.com/WGO4yFxKZs— Sky Sports News (@SkySportsNews) September 23, 2026 Ronaldo viðurkenndi fyrir leikinn að hann hefði hugleitt að hætta alfarið með landsliðinu eftir HM. „Já, ég gerði það. Auðvitað hugsa ég alltaf um ákvarðanir mínar,“ sagði Ronaldo. Hann ræddi málið meðal annars við forseta portúgalska knattspyrnusambandsins og þjálfarann Jorge Jesus áður en hann tók ákvörðun um að halda áfram. „Ég trúi enn að ég geti hjálpað landsliðinu að ná því sem það vill. Ég held að ég geti gefið landsliðinu stuðning minn, ekki bara með mörkum heldur líka utan vallar.“ Ronaldo hefur tvisvar orðið Þjóðadeildarmeistari með Portúgal og stefnir á að bæta þriðja titlinum í safnið. Samhliða landsliðsmarkmiðinu hefur Ronaldo einnig sett sér afar metnaðarfullt persónulegt markmið. Hann þarf að skora 21 mark til viðbótar til að ná 1.000 mörkum á ferlinum. „Bæði markmiðin eru mikilvæg. Þúsund mörk, já, og landsliðið. Að vinna Þjóðadeildina. Keppnin hefst á morgun og þetta er nýtt tímabil,“ sagði Ronaldo. Ronaldo hefur skorað 138 mörk í 222 landsleikjum fyrir Portúgal og er langmarkahæsti landsliðsmaður sögunnar.
Portúgal Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira