Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Samúel Karl Ólason skrifar 25. september 2026 08:01 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fer sífellt sjaldnar í lúxushýsi sitt við strendur Svartahafs. Þar hefur gamla húsið verið jafnað við jörðu og nýtt enn stærra hús byggt. EPA/VYACHESLAV PROKOFYEV, SPUTNIK Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega.
Upplýsingar um framkvæmdir sem þessar og samninga sem þeim tengjast eru ríkisleyndarmál en rússneskum blaðamönnum BBC tókst að koma höndum yfir ýmis gögn tengd framkvæmdunum vegna dómsmála milli verktakafyrirtækisins sem tók verkið að sér og undirverktaka. Þau benda til þess að framkvæmdirnar eigi að standa yfir fram á næsta ár. Ekkert útboð var haldið en ekki liggur fyrir hve mikið þær kosta rússneska ríkið. Þó aðalhúsið hafi verið rifið stóðu aðrar byggingar eftir, þar á meðal bygging sem var reist fyrir Vetrarólympíuleikana 2014, sem fóru fram í Sochi. Þar hefur Pútín tekið á móti mörgum gestum í gegnum árin. Blaðamaður BBC sýnir muninn á húsunum. Yngsta myndin af lóðinni á Google Maps er frá miðju 2005. Þá var búið að rífa húsið niður. 🚷Putin is getting a bigger Black Sea residence—under a state defence contract.Its main house was demolished. Satellite images now show new buildings with a larger footprint.Our BBC Russian investigation: https://t.co/5gk8vTF8Fz pic.twitter.com/3hJKA0w8in— Андрей (@Soshnikoff) September 24, 2026 Ferðum Pútíns til Sochi hefur þó fækkað verulega, samhliða fleiri drónaárásum Úkraínumanna á svæðinu. Blaðamenn Financial Times hafa áætlað að árið 2021 fór Pútín 24 sinnum til Sochi. Árið 2022, þegar innrásin í Úkraínu hófst, fór hann þrettán sinnum. Þá fór hann einungis tvisvar sinnum til Sochi árið 2024 og jafn oft í fyrra. Þau ár voru framkvæmdir hafnar en húsið var rifið um mitt ár 2024. Undirverktakar sáu um stóran hluta framkvæmdanna og komu fljótt upp deilur milli fyrirtækja sem rötuðu í dómsal. Í gegnum árin hafa fjölmargar auglýsingar verið birtar í Rússlandi þar sem leitað hefur verið að starfsmönnum til að vinna við framkvæmdirnar. Þar hefur byggingunni bæði verið lýst sem tveggja og fjögurra hæða. Gervinhnattamynd af húsinu frá maí 2023.Google Í auglýsingum eftir starfsfólki var varað við því að umsækjendur þyrftu að gangast undir umfangsmikla bakgrunnsskoðun. Þá var verkinu lýst sem „strategísku“ og starfsfólki lofað greiðslum í reiðufé og gistingu með aðgangi að sundlaug. Þá var í fyrstu lögð sérstök áhersla á rússneska ríkisborgara með hreina sakaskrá. Seinna meir var þessum viðmiðum breytt og menn frá öðrum ríkjum einnig ráðnir. Bocharov Ruchey er ekki eina lúxushús Pútíns. Sjá einnig: Svipti hulunni af íburðarmiklum sumarbústað Pútíns Á þessu ári hafa auglýsingarnar svo breyst. Þar sem áður var verið að leita að mönnum sem kunnu að vinna með steypu og að grófari verkefnum var byrjað að leita að mönnum fyrir innanhússvinnu. Þá var leitað að rafvirkjum, pípurum og annars konar iðnaðarmönnum. Eins og áður segir liggur ekki fyrir hve mikið framkvæmdirnar hafa og munu kosta rússneska ríkið. Blaðamenn BBC fundu þó nokkrar auglýsingar þar sem vísað var til heildarkostnaðar við tiltekna hluta framkvæmdanna. Í heildina hljóðuðu þær upphæðir upp á 1.390 milljónir rúbla. Það samsvarar um tveimur milljörðum króna, lauslega reiknað. Pútín tók árið 2015 á móti Dmitrí Medvedev, þáverandi forsætisráðherra Rússlands, í lúxushúsi sínu í Bocharov Ruchei í Sochi.EPA/EKATERINA SHTUKINA, RIA NOVOSTI Vladimír Pútín og Dmitrí Medvedev að grilla.EPA/MIKHAIL KLIMENTIEV, RIA NOVOSTI Þeir Pútín og Medvedev tóku einnig á því í einkarækt forsetans.EPA/MIKHAIL KLIMENTIEV, RIA NOVOSTI
Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira