Viðskipti innlent

50skills tryggir 729 milljónir í fjár­mögnun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kristján Freyr Kristjánsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri 50skills
Kristján Freyr Kristjánsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri 50skills Aðsend

Fyrirtækið 50skills hefur tryggt sér um 729 milljónir íslenskra króna, eða sex milljónir Bandaríkjadala, í fjármögnun til áframhaldandi vaxtar og þróunar á sviði sjálfvirknivæðingar mannauðsferla. 

Í tilkynningu kemur fram að fjármagnið verði nýtt til að fjölga starfsfólki í sölu- og markaðsmálum og efla uppbyggingu notendasamfélags 50skills. Jafnframt verði áfram fjárfest í þróun lausnarinnar. Frumtak, Swiss Post Ventures, Avant og bandaríska fjárfestingafélagið DRD Investments leiddu fjármögnunina í sameiningu samkvæmt tilkynningu.

Meðal viðskiptavina 50skills hér á landi eru Icelandair, Festi, Bláa lónið, Eimskip, Domino’s, Isavia og Orkuveita Reykjavíkur, auk opinberra aðila á borð við utanríkisráðuneytið og Reykjavíkurborg.

50skills hjálpar mannauðsteymum að sjálfvirknivæða ferla, nýta gervigreind, tengja saman kerfi og draga úr handvirkri umsýslu. Fyrirtæki á Íslandi, Norðurlöndum og Bretlandi hafa framkvæmt yfir fjórar milljónir sjálfvirkra aðgerða í 50skills á undanförnum 12 mánuðum samkvæmt tilkynningu. 

Teymið sem vinnur að baki 50skills.Aðsend

Minni handavinna

Í tilkynningu segir að ávinningurinn birtist meðal annars í verkefnum sem áður kröfðust mikillar handavinnu. 

Til að mynda hafi Icelandair fært yfir 20 mannauðsferla á stafrænt form og sparað sem nemur fjögurra til fimm mánaða vinnu við umsýslu á ári. Þar séu meðal annars yfir 3.000 kvittanir vegna heilsustyrkja yfirfarnar árlega í 50 skills samkvæmt reglum félagsins.

Þá spari Air Atlanta um 50 vinnustundir á viku með sjálfvirkni í einu ferli við afgreiðslu vegabréfsáritana, sem jafngildir meira en einu fullu starfi.

Íslandshótel hafi svo stytt afgreiðslutíma umsókna um starfsmannahlunnindi um 80 prósent á 18 hótelum, mál sem áður tóku klukkustundir taka nú aðeins fimm mínútur og í sumum tilvikum þurfi mannauðsteymið ekki lengur að koma að afgreiðslunni. Þá hafi Samskip samræmt mannauðsferla fjögurra dótturfyrirtækja og sjálfvirknivætt móttöku nýliða í ferli sem telur yfir 150 aðgerðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×