Telur litla veltu og virkni á hlutabréfamarkaði vera „raunverulegt vandamál“
Seðlabankastjóri telur minnkandi virkni á íslenskum hlutabréfamarkaði, meðal annars samhliða sífellt meiri samþjöppun lífeyriskerfisins, vera „raunverulegt vandamál“ og segir ástæðu til að ræða hvort stjórnvöld eigi að skapa aukna hvata fyrir almenning til að fjárfesta á markaði. Lífeyrissjóðir séu í eðli sínu langtímafjárfestar og því verði hlutabréfamarkaður þar sem þeir eru ráðandi seint mjög líflegur.
Tengdar fréttir
Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórnendum félaga
Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.
Boða aðgerðir til að auðvelda almenningi að fjárfesta með skilvirkum hætti
Stjórnvöld vinna nú að undirbúningi frumvarps, sem áformað er að verði orðið að lögum snemma árs 2027, sem miðar að því að bæta miðlun innlends sparnaðar til fjárfestinga og meðal annars auðvelda einstaklingum að fjárfesta með skilvirkari hætti. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur áður sagt að verið sé að skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði.
Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður
Smærri fjármálafyrirtæki, meðal annars Fossar og Acro, leita nú leiða til hagræðingar samhliða erfiðu árferði á verbréfamörkuðum og hafa þurft að segja upp starfsfólki á undanförnum dögum. Velta á hlutabréfamarkaði skrapp saman um nærri fimmtíu prósent á fyrri árshelmingi.
Hvetja aðildarríki til að bjóða sparnaðarleiðir með skattalegum hvötum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur beint þeim tilmælum til aðildarríkjanna að innleiða svonefnda sparnaðar- og fjárfestingarreikninga, sem hefur meðal annars verið gert í Svíþjóð með góðum árangri, sem myndu njóta skattalegs hagræðis í því skyni að ýta undir fjárfestingu og hagvöxt í álfunni. Hér á landi er þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði með minna móti og engir skattalegir hvatar til að ýta undir kaup í skráðum félögum.