Sport

Hætti keppni á heims­meistara­móti þrátt fyrir góðan undir­búning

Andri Broddason skrifar
Arnar Pétursson átti erfitt með að hlaupa í hitanum í Slóveníu
Arnar Pétursson átti erfitt með að hlaupa í hitanum í Slóveníu arnar pétursson

Hlaupagarpurinn Arnar Pétursson tók þátt í heimsmeistaramótinu í 100 kílómetra hlaupi sem fór fram í borginni Koper sem er staðsett í Slóveníu. Hann undirbjó sig vel fyrir mótið og var með miklar væntingar en hitinn var honum ofviða og þurfti hann að hætta keppni.

Arnar Pétursson skrifaði um upplifun sína á mótinu á vefsíðu sinni en þar tók hann fram að hann hafi hlupið sitt fyrsta 100 kílómetra hlaup fyrir aðeins ári síðan. Hann fékk fjölskylduna með sér í undirbúninginn og eftir að hafa tekið nokkur æfingahlaup sá Arnar tækifæri um að hann gæti orðið heimsmeistari.

Einhver meiðsli hrjáðu Arnar í sumar þegar hann var að hlaupa á Íslandi og þá sérstaklega í hásininni. Eftir því sem leið á tímabilið náði hann þó að hrista meiðslin af sér og fór hann í æfingabúðir til St. Moritz í þrjár vikur áður en hlaupið hófst.

Æfingabúðirnar gengu eins og í sögu og urðu væntingar Arnars miklar fyrir hlaupið. Þegar loks hlaupið byrjaði í Slóveníu var Arnar klár í slaginn og byrjaði hlaupið gríðarlega vel fyrir hann. Arnar náði að viðhalda góðum hraða og eftir fyrstu 5 kílómetrana var hann í öðru sæti í hlaupinu.

Arnar náði að halda góðum hraða fyrstu 40 kílómetrana en eftir það varð allt erfiðara. Sólin var hátt á lofti og mikill hiti var í hlaupinu sem byrjaði að hafa áhrif á Arnar. Skyndilega hægðist á honum og á sama tíma varð allt erfiðara í þokkabót. Þegar 50 kílómetrar eru búnir er lítil orka eftir og til að bæta gráu ofan á svart þá byrja gömul meiðsli að vakna aftur af værum blundi.

Arnar reyndi það sem hann gat að hrista meiðslin af sér en náði því ekki og þurfti að hætta keppni þegar um 45 kílómetrar voru eftir. Svekkjandi niðurstaða þar sem undirbúningurinn fyrir mótið var frábær en fjölskyldan náði að taka vel utan um hann og hlúa að honum þangað til hann mætir næstu áskorun.

Nánar má lesa um hlaupið á arnarpeturs.com




Fleiri fréttir

Sjá meira


×