„Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 07:28 Heimir Hallgrímsson á blaðamannafundinum í Debrecen í Ungverjalandi í gærkvöld, þar sem heimaleikur Ísraela við Íra fór fram. Getty/Ben McShane Heimir Hallgrímsson var ákaflega stoltur af leikmönnum sínum í írska landsliðinu í fótbolta sem rúlluðu yfir Ísraela, 3-0 í Ungverjalandi í gærkvöld, eftir langan og einstaklega erfiðan aðdraganda að leiknum.
Gavin Bazunu, einn markvarða Írlands, dró sig úr hópnum fyrir leikinn þar sem hann vildi ekki spila á móti Ísrael. Gríðarlegur þrýstingur hefur verið á írska hópinn heima fyrir síðustu mánuði, um að sniðganga leikinn, og eftir langan fund leikmanna á laugardag fór fram kosning um málið. Þeirri kosningu lauk þó með því að meirihlutinn vildi spila í stað þess að Ísrael yrði dæmdur sigur. Frammistaðan var allt önnur en í 1-0 tapinu gegn Kósovó síðasta fimmtudag og nú eru Írar komnir með fyrstu þrjú stig sín í Þjóðadeildinni. „Þeir eru fótboltamenn og þeir vildu sýna það á vellinum, láta fæturna tala,“ sagði Heimir á blaðamannafundi eftir leik í gærkvöld. „Það sem þeir gerðu var áhrifamikið. Á erfiðum tímum finnur maður leiðtogana og það voru svo margir leikmenn sem stigu upp á þessum erfiðu tímum. Orkustigið sem þeir sýndu var áhrifamikið. Frammistaðan var góð miðað við allan undirbúninginn, skort á æfingum, allir fundirnir okkar snerust um eitthvað annað en fótbolta. Ég gæti ekki verið stoltari af leikmönnunum. Enginn hefði getað séð fyrir og enginn hefði getað undirbúið sig fyrir allan þennan glundroða og sirkus í kringum þetta. Við munum örugglega taka fleiri réttar ákvarðanir sem samband, þjálfarateymi og leikmenn. Við munum fara varlegar í það sem við segjum,“ sagði Heimir sem sjálfur olli mikilli reiði hjá Ísraelum með ummælum sínum um að Írar væru „ekki að spila með þjóðarmorði heldur gegn þjóðarmorði“. „Vonandi getur þetta verið stórt skref í undirbúningi fyrir Evrópumótið. Eftir þetta verða öll vandamál eins og kjúklingaskítur,“ sagði Heimir í gærkvöld. Enginn reiður yfir ákvörðun Bazunu Spurður út í ákvörðun Bazunu, sem tilkynnti Heimi á laugardagsmorgun að hann yrði ekki með gegn Ísrael, svaraði Heimir: „Það var enginn reiður út í ákvörðun hans, það var bara tímasetningin sem var erfið fyrir suma leikmenn, að geta ekki brugðist við henni. Ég held ég hafi farið fimm sinnum inn í herbergið hans á laugardaginn og við fórum allir út í kaffi með honum. Við reyndum að láta honum líða eins vel og mögulegt var við erfiðar aðstæður. Vonandi getur þetta leitt til einhvers betra, bara það að ganga í gegnum svona tíma mun styrkja böndin milli leikmanna og vonandi styrkja böndin milli okkar og stuðningsmanna okkar. Þessir strákar hafa sýnt hversu mikið þeir elska landið sitt.“ Heimir sagði jafnframt að planið væri að Bazunu yrði í hópnum gegn Austurríki á fimmtudaginn en myndi svo aftur draga sig úr hópnum fyrir seinni leikinn við Ísrael sem fram fer í Serbíu á sunnudag.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira