HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 08:30 Vozinha fékk gríðarlega athygli á HM en kann ekki vel við frægðina. Getty/Jean Catuffe Vozinha, hinn fertugi markvörður Grænhöfðaeyja sem sló rækilega í gegn á HM í fótbolta í sumar, er leiður yfir allri athyglinni sem fylgir nýfenginni frægð. Núna fær hann hvergi frið fyrir fólki og jafnvel foreldrar hans eru ásóttir.
Grænhöfðaeyjar voru í fyrsta sinn með á HM í sumar og töpuðu ekki leik þar í venjulegum leiktíma. Vozinha vakti heimsathygli með því að halda hreinu gegn verðandi heimsmeisturum Spánar í fyrsta leik og það var ekki fyrr en í framlengingu gegn Argentínu í útsláttarkeppninni sem Vozinha og félagar féllu úr keppni. Hann hóf mótið með 56.000 fylgjendur á Instagram en núna fylgjast 28,4 milljónir manns með honum á samfélagsmiðlinum. „Ég hef misst frið og ró,“ segir Vozinha í viðtali við The Observer. „Ég hef ekkert einkalíf lengur, eða að minnsta kosti mun minna en áður. Núna fer ég út, fer á veitingastað og það er alltaf einhver sem vill taka mynd með mér eða biður mig um eiginhandaráritun. Eða, það sem verra er, einhver er að taka mig upp á myndband. Það er það sem hefur breyst mest í lífi mínu og ég held að það sé ekkert sem ég get gert í því.“ Vozinha lenti í raun í því sama og Rúrik Gíslason á HM 2018, nema bara af enn meiri þunga, þegar hann komst að því eftir leik við Spán að hann væri kominn með milljón fylgjendur á Instagram. Brasilíska sjónvarpsstöðin CazéTV hafði hvatt áhorfendur til þess að fylgja Vozinha þar. „Starfsmaður í mötuneyti liðsins kom til mín og sagði mér að ég væri með milljón fylgjendur. Ég hafði ekki hugmynd um hvað hann var að tala; ég hélt að hann væri að grínast, en hann fullyrti það. Seinna fór ég í nokkur viðtöl á blandaða svæðinu og blaðamaður frá CazéTV spurði mig hvort ég vissi hvað væri að gerast. Hún sýndi mér símann sinn og þá sá ég að ég var kominn með meira en milljón fylgjendur,“ rifjaði Vozinha upp. View this post on Instagram A post shared by Josimar Dias (@vozinha1) Hann ákvað á endanum að slökkva á Instagram til að geta einbeitt sér áfram að heimsmeistaramótinu. „Ég veit að á meðan á heimsmeistaramótinu stóð voru mörg fyrirtæki og vörumerki sem vildu vinna með mér en á meðan við vorum að keppa samþykkti ég aðeins eitt kynningarsamstarf, við UFL Mobile. Ég veit ekki hvaða tilboð gætu borist í framtíðinni, en í bili vil ég ekki vinna með neinum tóbaks-, áfengis- eða veðmálafyrirtækjum,“ sagði Vozinha. Hann er í hópi þeirra markvarða sem tilnefndir eru sem besti markvörður ársins fyrir Ballon d‘Or-verðlaunahátíðina og segir það mikinn heiður. Þá fagnar hann því að geta hjálpað sinni þjóð að fá ferðamenn til landsins en þeir hafa reyndar átt það til að vilja heimsækja foreldra Vozinha sem markvörðurinn segir að verði sjálfir að finna leiðir til að setja öðru fólki mörk. Sjálfur vill hann ekki alla þessa athygli. „Margir vilja verða frægir og vera þekktir, en þeir sjá aðeins jákvæðu hliðarnar á þeim veruleika. Satt best að segja, ef mér byðist lífið sem ég hef í dag eða lífið sem ég hafði áður, myndi ég velja það sem ég hafði áður.“ Eftir HM gekk Vozinha til liðs við Colo-Colo í Síle. Hann hugðist hætta með landsliðinu en sneri þeirri ákvörðun og er nú að keppa með Grænhöfðaeyjum í undankeppni Afríkumótsins. Liðið tapaði þar 3-1 á útivelli gegn Malí í fyrsta leik en mætir Rúanda á morgun.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira