Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Lovísa Arnardóttir skrifar 29. september 2026 06:12 Meðferðarheimilið Stuðlar er til húsa í Grafarvoginum í Reykjavík. vísir/vilhelm Rannsókn lögreglunnar á bruna á meðferðarstofnuninni Stuðlum fyrir um tveimur árum er lokið og komin á borð héraðssaksóknara. Fyrst var greint frá þessu á vef RÚV. Sautján ára drengur, Geir Örn Jacobsen, lést í brunanum og starfsmaður Stuðla slasaðist.
Í frétt RÚV segir að tólf séu með réttarstöðu sakbornings hvað varðar manndráp af gáleysi. Greint var frá því í sumar að málið væri komið til ákærusviðs og að tíu væru með réttarstöðu sakbornings. Í frétt RÚV í gær segir að meðal þeirra séu Óskar Jósefsson forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Vísir greindi frá því í mars að rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefði leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á Stuðlum, sem hefðu haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf. „Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar,“ sagði í tilkynningu um skýrslu HMS. Geir Örn var í neyðarvistun á Stuðlum þegar hann lést í eldsvoðanum en í skýrslunni sagði að ef brunavarnir hefðu verið virkar hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát.
Börn og uppeldi Málefni Stuðla Meðferðarheimili Fíkn Tengdar fréttir Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Í rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Níu eru með stöðu sakbornings í málinu. 18. mars 2026 19:02 Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Fjölskyldur sem hafa misst syni og lýsa áralangri baráttu við kerfið skoða lagalega stöðu sína og telja að gróflega hafi verið brotið á réttindum barnanna. Faðir drengs sem lést í bruna á Stuðlum segir málaferli virðast þurfa til að eitthvað breytist. Lögregla rannsakar enn brunann og tveir eru með réttarstöðu sakbornings. 17. desember 2025 19:00 „Barnið mitt dó á ykkar vakt“ „Það er löngu komin tími til að þú, Guðmundur Ingi og þitt ráðuneyti, hysjið upp um ykkur, takið ábyrgð og sýnið það í verki, áður en að fleiri börn deyja á ykkar vakt. Því barnið mitt dó á ykkar vakt og það er blákaldur sannleikurinn,“ skrifar móðir sautján ára drengs sem lést í eldsvoðanum á Stuðlum fyrir ári síðan. 19. október 2025 13:52 Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Þrír eru með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á mannskæðum bruna sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum í Reykjavík þann 19. október í fyrra. 16. maí 2025 08:44 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Í rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Níu eru með stöðu sakbornings í málinu. 18. mars 2026 19:02
Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Fjölskyldur sem hafa misst syni og lýsa áralangri baráttu við kerfið skoða lagalega stöðu sína og telja að gróflega hafi verið brotið á réttindum barnanna. Faðir drengs sem lést í bruna á Stuðlum segir málaferli virðast þurfa til að eitthvað breytist. Lögregla rannsakar enn brunann og tveir eru með réttarstöðu sakbornings. 17. desember 2025 19:00
„Barnið mitt dó á ykkar vakt“ „Það er löngu komin tími til að þú, Guðmundur Ingi og þitt ráðuneyti, hysjið upp um ykkur, takið ábyrgð og sýnið það í verki, áður en að fleiri börn deyja á ykkar vakt. Því barnið mitt dó á ykkar vakt og það er blákaldur sannleikurinn,“ skrifar móðir sautján ára drengs sem lést í eldsvoðanum á Stuðlum fyrir ári síðan. 19. október 2025 13:52
Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Þrír eru með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á mannskæðum bruna sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum í Reykjavík þann 19. október í fyrra. 16. maí 2025 08:44