Karl Th. jarðsunginn í dag Jakob Bjarnar skrifar 29. september 2026 10:53 Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag. skjáskot úr sálmaskrá Ritstjórinn Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag klukkan 15. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju en séra Davíð Þór Jónsson syngur yfir hinum látna.
Ríkisútvarpið vinnur nú að endurflutningi rómaðra útvarpsþátta hans, Orð skulu standa, en Illugi Jökulsson rithöfundur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann ritar stutt minningarorð: „Þess varð vart þegar hann dó á dögunum að margir vildu fá að heyra á ný hina frábæru útvarpsþætti sem hann hélt úti í mörg ár ásamt góðu fólki, Orð skulu standa, og það vill svo til að ég veit að fólk hjá Ríkisútvarpinu er einmitt núna að undirbúa endurflutning á þeim og verður af því fyrr en síðar. Það er þó eitthvað að hlakka til þótt við kveðjum hann sjálfan.“ Flóð minningarorða um Kalla féllu á samfélagsmiðlum í kjölfar andlátsfregnar og tók Vísir saman það helsta sem til féll. Í Morgunblaðinu í dag má sjá fjölda minningargreina. Meðal annarra ritar Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis grein þar sem hún minnist Kalla: „Kalli var sérvitur og sjarmerandi, hrifnæmur og viðkvæmur. Hann reyndi auðvitað að fela það á bak við brynju kúlsins en tókst það sjaldnast. Fíknin markaði líf hans djúpum sporum og síðasta áratuginn stjórnaði hún ferðinni. Hann missti föður sinn á unglingsaldri og frásögn hans af þeim missi nístir inn að beini. Kalli var miðbæjarrotta sem leitaði reglulega í heimahagana austur á fjörðum. Bjó um tíma á Stöðvarfirði og ritstýrði góðu héraðsblaði,“ skrifar Þórunn. Annar sem ritar um Karl er Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri sem meðal annars rifjar upp að hann hafi á sínum tíma, einn manna í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar, lagst gegn því að Karl yrði ráðinn framkvæmdastjóri hreyfingarinnar. Þetta reyndist upphaf ævilangrar vináttu og stýrði Kalli fræknasta kosningasigri Samfylkingarinnar 2003; hlaut 31 prósent atkvæða og 20 þingmenn. „… þar sem Kalli sat í reykfylltu bakherbergi, í orðsins fyllstu merkingu, og hélt utan um alla þræði. Á stöðufundum í þeirri kompu skipti litlu hvort maður hélt á sígarettu eða ekki – allir önduðu að sér ómældu magni af Viceroy.“ Karl fæddist 8. október 1963 en andaðist 16. september 2026. Hann lætur eftir sig þrjú börn og barnabörn.
Tímamót Hallgrímskirkja Fjölmiðlar Bókaútgáfa Samfylkingin Tengdar fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Karl Th. Birgisson, stjórnmálafræðingur, ritstjóri, útvarpsmaður og rithöfundur, er látinn 62 ára að aldri. Hann andaðist í nótt 16. september en Karl hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár. 16. september 2026 17:03 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Richard Riehle látinn Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira
Karl Th. Birgisson er látinn Karl Th. Birgisson, stjórnmálafræðingur, ritstjóri, útvarpsmaður og rithöfundur, er látinn 62 ára að aldri. Hann andaðist í nótt 16. september en Karl hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár. 16. september 2026 17:03