Viðskipti innlent

Telja gagna­ver skila litlum á­vinningi í Noregi

Kjartan Kjartansson skrifar
Líkan af neðanjarðargagnaveri þýska fyrirtækisins Nothern Data AG í Lefdal-saltnámunni á vesturströnd Noregs.
Líkan af neðanjarðargagnaveri þýska fyrirtækisins Nothern Data AG í Lefdal-saltnámunni á vesturströnd Noregs. Vísir/EPA

Gagnaver hafa skapað fá störf og takmarkaðar tekjur í Noregi. Virðisauki af starfsemi þeirra verður að mestu erlendis enda eru níu af hverjum tíu gagnaverum í landinu í eigu útlendinga.

Þó að þúsundir starfa verði til á meðan gagnaver eru byggð skilja þau lítið eftir sig í heimabyggð samkvæmt nýrri skýrslu nefndar sem veitir norskum stjórnvöldum ráð í tæknimálum. 

Rekstur gagnaveranna skapar aðeins örfá varanleg störf og virðisauki af starfseminni fyrir Noreg er mun minni en af hefðbundnum iðnaði. Skatttekjur eru einnig takmarkaðar því virðisaukinn á sér stað annars staðar.

„Tekjurnar sem verða eftir hjá okkur er tekjuskattur af fólkinu sem vinnur þarna og eignaskattur. Það er allt og sumt,“ segir Sverre Gotaas, formaður Tækninefndar Noregs við norska ríkisútvarpið.

Gotaas telur einnig vandamál að engin forgangsröðun sé hjá norskum stjórnvöldum á því hverjir fá leyfi til að reisa gagnaver og í hvaða tilgangi. Enginn greinarmunur sé gerður á því hvort að gagnaverin eigi að hýsa þjónustu fyrir afþreyingu eins og Tiktok annars vegar eða eða samfélagslega mikilvæg gögn eins og heilbrigðisupplýsingar hins vegar.

Talsmenn iðnaðarverkamanna óttast um störf í Noregi ef hefðbundinn iðnaður verður undir í samkeppni við erlend gagnaver um raforku. Þeir hafa kallað eftir strangari reglum um gagnaver.

„Við þurfum ekki á skefjalausri útbreiðslu gagnavera að halda sem nota rafmagnið sem iðnaðurinn þarf til grænna orkuskipta. Við óttumst um störf okkar. Ef við fáum ekki þá raforku sem við reiðum okkur á glatast þúsundir starfa,“ segir Roger Hansen, formaður Verkalýðsfélags Herøya í Þelamörk í Suður-Noregi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×