Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. september 2026 21:21 Ágreiningurinn í málinu sem er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur lýtur að beiðni Skattsins um að lögmannsstofa afhendi Skattinum skrá yfir umbjóðendur stofunnar. Vísir/Vilhelm Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu.
EFTA-dómstóllinn komst að niðurstöðunni í dag. Lögmannafélagið væntir þess að ráðgefandi dómur dómstólsins brýni fyrir stjórnvöldum og skattyfirvöldum hérlendis mikilvægi þess að virða hlutverk lögmanna í lýðræðissamfélagi. Málið tengist ágreiningi um beiðni Skattsins samkvæmt tekjuskattslögum um að lögmannsstofa afhendi sér skrá yfir alla þá umbjóðendur stofunnar sem stofan hefur veitt skattráðgjöf og aðra þjónustu sem snertir umráð eða eignaraðild umbjóðenda á árunum 2019 til 2024. Spurning hvort löggjöfin geti talist réttlætanleg „Meginspurningin er hvort slík löggjöf aðildarríkis geti talist réttlætanleg með hliðsjón af trúnaðarskyldu lögmanna sem nýtur verndar samkvæmt EES-rétti,“ segir meðal annars í inngangi EFTA- dómsins. Umrætt mál er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. „Á fyrri stigum málsins hafði félagið sent Skattinum rökstutt erindi þar sem vakin var meðal annars athygli á mikilvægi þess að virða grundvallarhlutverk lögmanna í lýðræðissamfélagi,“ segir í tilkynningu Lögmannafélagsins. EES-samningurinn girði fyrir skyldu lögmanna til að upplýsa Skattinn Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins segir að 36. grein EES-samningsins, með hliðsjón af réttindum til friðhelgi einkalífs, girði fyrir að lögmönnum sé skylt að upplýsa skattyfirvöld um upplýsingar umbjóðenda sem þeir hafa veitt skattaráðgjöf eða aðra þjónustu sem snertir umráð, beina eða óbeina eignaraðild þeirra að rekstri félaga, sjóða eða stofnana sem skráð eru erlendis eða eignir. Þetta eigi við ef beiðni skattyfirvalda gengur lengur en brýn nauðsyn og meðalhóf krefja.
Dómsmál EES-samningurinn Lögmennska Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Sjá meira