Formúla 1

Á förum frá Haas og mögu­lega frá For­múlu 1

Andri Broddason skrifar
Esteban Ocon vann ungverska kappaksturinn árið 2021 með Alpine.
Esteban Ocon vann ungverska kappaksturinn árið 2021 með Alpine. vísir/Getty

Esteban Ocon er á förum frá liði sínu Haas í Formúlu 1 þar sem samningur hans við liðið gildir aðeins út tímabilið. Það er möguleiki á að þetta verði síðasta tímabil Ocon í Formúlu 1.

Það er lítið um laus sæti í Formúlu 1 og hefur Ocon keyrt fyrir mörg þeirra nú þegar. Hann keyrði í fyrsta skipti í Formúlu 1 árið 2016 og keyrði þá fyrir lið sem heitir Manor og fór þaðan yfir í Force India sem hefur þróast núna yfir í Aston Martin.

Árangursríkasti tíminn hans í Formúlu 1 var þegar hann var hjá Alpine en hjá liðinu náði hann í sínum eina sigri í Formúlu 1 sem kom í ungverska kappakstrinum árið 2021. Á síðasta tímabili gekk hann til liðs við Haas en liðið tilkynnti í síðustu viku að Ocon yrði ekki hjá liðinu á næsta ári.

Orðrómur er á sveimi um að Ocon gangi til liðs við Toyota í WEC-heimsmeistarakeppninni. Þar er keppt í þolakstri og er lið Toyota efsta liðið í því heimsmeistaramóti. Þar bar hæst úr bítum var sigur hjá liðinu í LeMans-kappakstrinum í Frakklandi en liðið náði einnig þriðja sætinu.

Í færslu á samfélagsmiðlum segist Ocon enn vera hungraður í að keppa á hæsta stigi og ætlar hann ekki að hætta að gefa sig allan fyrir Haas.

„Ég er strax byrjaður að einbeita mér að næstu keppnishelgi. Ég mun halda áfram að vinna með liðinu og ná því mesta sem mögulegt er úr öllum tækifærum sem gefast.“

Oliver Bearman, liðsfélagi Ocon hjá Haas, hefur staðið sig mun betur en Ocon í Haas-bílnum þar sem hann er 13 stigum á undan honum í heimsmeistaramóti ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×