„Held ég muni pakka henni saman“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. október 2026 11:30 Hekla María pakkaði Evrópumeistaranum saman um daginn og nú er komið að því að fella Norðurlandameistarann. vísir/sigurjón Þriðja Glacier Fight Night bardagakvöldið fer fram í Úlfarsárdal á morgun og er búist við mikilli flugeldasýningu.
Hin magnaða Hekla María Friðriksdóttir mun þá stíga í búrið og berjast við hina finnsku, Kertu Saarnisari. „Mér finnst ógeðslega gaman að berjast hérna heima fyrir framan fólkið mitt,“ segir Hekla María spennt fyrir kvöldinu. Klippa: Hekla ætlar í atvinnumennskuna Eins og áður segir er andstæðingur hennar frá Finnlandi og Hekla ætlar sér ekkert annað en sigur. „Hún er ríkjandi Norðurlandameistari og tók silfur á Evrópumeistaramótinu. Hún er með mikla bardagareynslu og flottur andstæðingur. Ég held samt að ég munu pakka henni saman,“ segir okkar kona kokhraust og það ekki að ástæðulausu. Það er nefnilega stutt síðan hún mætti Evrópumeistaranum og fór létt með hann. „Ég vann Evrópumeistarann í fyrstu lotu í ágúst. Það var mjög skemmtilegt og ég var mjög stolt af mér. Varðandi andstæðinginn núna þá er ég betri í glímu en hún. Mín glíma er mjög góð og góð pressa ofan á frá mér. Síðustu mánuði hef ég bætt mig rosalega standandi og að ná fólki niður. Ég er á uppleið og þar að leiðandi með mikið sjálfstraust.“ Hekla María er með fimm bardaga undir beltinu og hún hefur klárað þrjá þeirra í fyrstu lotu. „Ég hef unnið alla mína bardaga á uppgjafartaki og ég sé alveg fyrir mér að halda áfram á þeirri braut. Eina tapið mitt var í bardaga sem fór alla leið,“ segir Hekla María sem er orðin 31 árs og langar að fara lengra með ferilinn. „Mig langar að verða atvinnumaður. Ég sé alveg fyrir mér að gera það fljótlega. Þar sem ég er orðin 31 árs finnst mér ég verða að drífa mig. Mig dreymir stóru draumanna.“
MMA Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira