„Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. október 2026 10:30 Það er stórt kvöld fram undan hjá Krumma. vísir/sigurjón Hrafn Þráinsson stígur inn í búrið í síðasta sinn á sínum ferli í kvöld og það kemur ekkert annað til greina en að enda ferilinn á sigri.
Hrafn, eða Krummi eins og hann er jafnan kallaður, mætir þá Bretanum Will Bean í þriðja skiptið á ferlinum. Þeir mætast á Glacier Fight Night í Fram-heimilinu. Fyrri bardagar þeirra enduðu án niðurstöðu og því er allt undir núna. „Það er skemmtilegt að fá að taka síðasta dansinn heima. Ég hlakka mikið til að dansa fyrir framan mitt fólk í mínum síðasta bardaga,“ segir Krummi en þetta verður í fyrsta og eina skiptið sem hann nær að berjast á Íslandi. Klippa: Síðasti dansinn hjá Krumma „Ég er orðinn 39 ára gamall og er að reka fyrirtæki. Ég hef aldrei haft risadrauma með ferilinn en er kominn eins langt með ferilinn og ég vildi. Ég geng í burtu þakklátur.“ Það er mikil spenna hjá honum að fá að mæta Bean og spennan er eflaust svipuð hjá Bretanum. „Það er búin að vera drama og bölvun á bak við þessa bardaga. Í fyrsta bardaganum árið 2023 þá var tímavörðurinn utan við sig. Lotan fór 30 sekúndur fram yfir og þá vinnur hinn. Svo áttuðu menn sig á mistökunum og það var lagfært. Eftir meira drama var þetta dæmt no contest. Í seinni bardaganum þá fæ ég putta í augað frá honum eftir að hafa slegið hann niður tvisvar. Það þurfti að sauma saman á mér augað. Með því óþægilegra sem ég hef lent í,“ segir Krummi en hvað gerist nú? „Allt er þegar þrennt er. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að láta þetta ekki enda í höndum dómaranna. Ég mun klára þetta með rothöggi eða uppgjafartaki. Mig grunar að það gerist í annarri lotu en það gæti líka komið í þriðju. Ég mun gera þetta að hörkushowi og það verður allt skilið eftir. Ég mun skilja sálina eftir í búrinu og gera mitt allra besta til að vinna."
MMA Tengdar fréttir „Held ég muni pakka henni saman“ Þriðja Glacier Fight Night bardagakvöldið fer fram í Úlfarsárdal á morgun og er búist við mikilli flugeldasýningu. 2. október 2026 11:30 Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira
„Held ég muni pakka henni saman“ Þriðja Glacier Fight Night bardagakvöldið fer fram í Úlfarsárdal á morgun og er búist við mikilli flugeldasýningu. 2. október 2026 11:30