„Miklu meiri hiti í kringum þetta kvöld núna“ Aron Guðmundsson skrifar 3. október 2026 08:01 Bjarki Þór Pálsson er maðurinn á bakvið Glacier Fight Night Vísir/Ívar Fannar Búast má við látum í Framheimilinu í kvöld þegar þriðja Glacier Fight Night bardagakvöldið fer fram. Upphafsmaður viðburðarins finnur fyrir miklum hita og eftirvæntingu fyrir kvöldinu, aðalbardaginn lætur MMA-áhugafólk fá vatn í munninn. „
Þetta er náttúrulega sama höllin en ég finn bara að það er miklu meiri hiti í kringum þetta kvöld núna,“ segir Bjarki Þór Pálsson, skipuleggjandi Glacier Fight Night, í samtali við Vísi. „Ég hef bara aldrei og það sama gildir um fólkið í kringum mig, fundið eins mikinn hita gagnvart því að tryggja sér borð og miða. Ég upplifi að fólk sé búið að taka aðeins meira eftir okkur núna heldur en síðast.“ Þetta virðist vera orðið rótgróið. Áttu von á því að það verði uppselt? „Já, það er bara að seljast upp núna, einhverjir 50 miðar eftir þannig að það ætti að fara miðað við síðasta kvöld sem við héldum. Þá fóru hundrað miðar bara á laugardeginum einum og sér.“ Bardagi sem togaði Krumma í búrið Bardagakvöldið lofar góðu og til að mynda fjórir titilbardagar á dagskrá. Áhugafólk um MMA bíður hins vegar með vatn í munninum fyrir aðalbardaganum milli Hrafns Þráinssonar og Will Bean. Þeir hafa í tvígang mæst í búrinu áður en aldrei hefur sigurvegari verið úrskurðaður. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) „Ég var alltaf með þennan bardaga í huga þegar ég byrjaði með Glacier Fight Night. Þetta var bardagi sem ég vildi tefla fram og ég þurfti að sannfæra Krumma um að taka þriðja bardagann þar sem hann var í rauninni hættur. Krammi var hins vegar tilbúinn að dusta rykið af hönskunum til þess að fá að berjast á Íslandi fyrir framan Íslendinga. Ég er mjög spenntur fyrir þessum bardaga.“ Ítarlegt viðtal við Hrafn birtist á Vísi seinna í dag þar sem að hann fer yfir sviðið fyrir bardaga kvöldsins þar sem þríleikur hans og Will Bean verður fullkomnaður. Allt gott verður enn betra Bjarki kappkostar við að bæta gæði Glacier Fight Night í hvert einasta skipti. „Við erum búin að vera að fara yfir allt svona sem að hefði nú mátt betur fara síðast þó allt hefði verið rosalega gott. Allt sem að var vel gert og fólk tók vel eftir, fannst skemmtilegt. Við munum gera það enn þá betur núna. Auka gæðin bara enn frekar. Ef að allt gengur upp, bardagarnir verða skemmtilegir, þá held ég að þetta verði bara ógleymanlegt kvöld.“ Glacier Fight Night orðinn rótgróinn viðburður og Bjarki horfir langt fram í tímann. „Ég er búinn að bóka Framheimilið fyrir næstu þrjú bardagakvöld sem eru 6. mars á næsta ári, síðan aftur í október og síðan aftur í mars árið 2028. Þetta er bara komið til að vera. Keyra á þetta og fara með þetta alla leið.“ Bjarki finnur áhugann á MMA aukast hér á landi. „Það þurfti bara eitthvað svona líka til þess að vekja áhugann. Ég finn að allir sem koma á viðburðinn, þó þeir hafi ekki áhuga á MMA, þá eru þeir bara: Heyrðu, bíddu, hvað er í gangi hérna? Það er einhver orka hérna, einhver stemning sem fólk hefur bara aldrei upplifað áður. Fólk sem hefur komið vill bara koma aftur og hérna. Ég held þetta eigi eftir að gefa sportinu og sé að gefa MMA á Íslandi bara virðinguna sem greinin á skilið.“ Fyrir þau sem eiga ekki heimangengt verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá Glacier Fight Night á streymisveitunni Livey.
MMA Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira