Fótbolti

Eistar bjuggu til toppslag við Ís­lendinga

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland og Eistland gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli fyrir viku en mætast í Eistlandi á þriðjudaginn.
Ísland og Eistland gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli fyrir viku en mætast í Eistlandi á þriðjudaginn. vísir/Anton

Eistar virðast ætla að veita Íslendingum mesta baráttu um toppsætið í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta en þeir unnu 1-0 heimasigur gegn Lúxemborg í dag.

Á sama tíma og Ísland rúllaði yfir Búlgaríu á Laugardalsvelli náði Eistland að vinna Lúxemborg 1-0 með marki frá Rasmus Peetson strax á fimmtu mínútu.

Eistland er því enn án taps því áður hafði liðið sótt stig til Íslands fyrir viku, með 1-1 jafntefli, og stig til Búlgaríu síðasta þriðjudag með markalausu jafntefli.

Eistland og Ísland mætast í Tallinn á þriðjudagskvöld, í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig, Eistland er með fimm, Lúxemborg þrjú en Búlgaría aðeins eitt stig.

Toppsæti riðilsins er afar dýrmætt en sigurliðið kemst beint upp í B-deild Þjóðadeildarinnar, fær sæti í þriðja styrkleikaflokki (í stað fjórða) í undankeppni EM og gæti komist í EM-umspilið takist liðinu ekki að komast á EM í gegnum undankeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×