Veður

Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax

Freyja Þórisdóttir skrifar
Haustlægðin hefur látið aðeins á sér kræla síðustu daga.
Haustlægðin hefur látið aðeins á sér kræla síðustu daga. Vísir/Anton Brink

Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið.

Er þetta meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að síðdegis muni draga eitthvað úr bæði vindi og úrkomu og fer þá lægðin að fjarlægast okkur hægt og bítandi. Í kvöld er svo von á norðan 3 til 8 metrum á sekúndu með súld á norðanverðu landinu en annars þurrt að mestu.

Þá kólnar smám saman í veðri, einkum fyrir norðan, og fer hitinn mest upp í átta stig syðst á landinu en verður víða við frostmark. Má gera ráð fyrir næturfrosti allvíða.

Á morgun, mánudag, verður veðri svo misskipt milli landshluta og er spáð norðan 3 til átta metrum á sekúndu með bjartviðri á vestanverðu landinu en norðaustantil eru horfur á norðvestan 5 til 13 með rigningu, slyddu eða snjókomu. Rigning næst sjávarmáli en líkur á snjó aukast eftir því sem hærra er farið.

Suðaustanlands er svo von á rigningu og tiltölulega litlum vindi en hiti verður áfram frá frostmarki og fer mest upp í átta stig syðst á landinu.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag: Norðan 3-8 m/s um landið vestanvert og bjartviðri. Norðvestan 5-13 norðaustantil og rigning, slydda eða snjókoma með köflum. Fremur hæg breytileg átt á Suðausturlandi og rigning um tíma. Hiti frá 1 stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Yfirleitt þurrt á landinu um kvöldið og frystir allvíða.

Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en víða næturfrost.

Á miðvikudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað, en líkur á lítilsháttar skúrum við suðvestur- og vesturströndina. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag: Stíf suðaustanátt með rigningu, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig. Hægari vindur og skúrir vestanlands um kvöldið.

Á föstudag og laugardag: Breytileg átt og líkur á vætu með köflum í flestum landshlutum. Hiti 3 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×