Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 18:04 Heimir Hallgrímsson á TSC Arena í Baka Topola í Serbíu, þar sem leikur Írlands við Ísrael fer fram í kvöld. Getty/Stephen McCarthy Leikmenn ísraelska landsliðsins munu bera svört sorgarbönd í kvöld þegar þeir mæta Írunum hans Heimis Hallgrímssonar í Þjóðadeildinni í fótbolta. Tveimur ísraelskum blaðamönnum hefur verið bannað að mæta á fund Heimis eftir leikinn.
Dramatíkin hefur verið mikil í kringum leiki Írlands og Ísraels en seinni leikur þjóðanna er í Serbíu í kvöld klukkan 18:45, fyrir luktum dyrum, og er hann sýndur á Viaplay. Írar voru með sorgarbönd þegar liðin mættust í Ungverjalandi fyrir viku síðan, til minningar um alla sem látið hafa lífið í átökunum á Gaza. Þetta virðist hafa fengið Ísraelsmenn til þess að sækja um leyfi UEFA til að bera sorgarbönd í kvöld og það leyfi hefur fengist. Samkvæmt ísraelska knattspyrnusambandinu munu leikmenn bera sorgarböndin til minningar um þá sem voru myrtir þegar Hamas og aðrir vígahópar réðust inn í Ísrael 7. október 2023 og drápu yfir 1.200 manns. Yfir 74.000 manns hafa verið myrtir af Ísraelsmönnum á Gaza síðan þá. @UEFA has approved the Israel Football Association’s request for the national team to wear black armbands in tonight’s match against @IrelandFootball in memory of those murdered in the October 7 massacre.May their memory be a blessing. pic.twitter.com/nWyl32B4oP— ISRAEL FA (@ISRAELFA) October 4, 2026 Mikill titringur hefur verið vegna leikja Írlands og Ísraels en seinni leikur þeirra er í Serbíu í kvöld. Það er heimaleikur Írlands en Írar treystu sér ekki til að hafa leikinn í Dublin og ákváðu strax í júní að spila frekar á hlutlausum velli. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir mikil læti í tengslum við leikinn. Blaðamannafundi Heimis í Serbíu í gær var þannig til að mynda slitið snarlega eftir spurningar ísraelskra fjölmiðlamanna sem snerust um nýlegt flugrán milli Dubai og Tel Aviv og meint kynþáttaníð írsks leikmanns í garð leikmanns Ísraels. Heimir reitti Ísraelsmenn til reiði í upphafi landsleikjatarnarinnar með ummælum sínum um að Írar væru „ekki að spila með þjóðarmorði heldur gegn þjóðarmorði“. UEFA hefur staðfest við Irish Times að tveir ísraelskir blaðamenn fái ekki að mæta á blaðamannafundinn eftir leik í kvöld vegna hegðunar sinnar í gær. Þegar Írar unnu Ísraelsmenn 3-0 í Ungverjalandi fyrir viku neituðu leikmenn írska liðsins að taka í hendur Ísraelsmanna og lutu höfði á meðan þjóðsöngur þeirra var spilaður. Þeir hefðu kosið að þurfa ekki að spila leikina en neyðast til þess þar sem UEFA hefur ekki bannað Ísraelsmönnum þátttöku í sínum mótum þó að þeim sé bannað að spila heimaleiki sína í Ísrael. Írska knattspyrnusambandið hafði óskað eftir því við UEFA að þurfa ekki að mæta Ísrael og fjöldi Íra, þar á meðal 160 íþróttamenn, hvatt til sniðgöngu. Einn leikmanna Írlands, markvörðurinn Gavin Bazunu, dró sig úr hópnum vegna leikjanna. Niðurstaðan varð þó sú að leikirnir færu fram og úr hefur orðið erfiðasta landsleikjatörn sem Heimir og hans menn hafa nokkurn tímann þurft að takast á við.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Fótbolti Fleiri fréttir Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Portúgal - Noregur | Haaland og félagar reyna að stöðva heimamenn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sjá meira