Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Agnar Már Másson skrifar 4. október 2026 20:51 Atvikið truflaði kennslustund, að sögn kennara. Hótel Tjarnir er starfrækt í gula húsinu lengst til hægri á myndinni. Í hinum gulu húsunum er Stórutjarnarskóli. Þingeyjarsveit Börn í 9.–10. bekk í Stórutjarnarskóla í Þingeyjarsveit voru í kennslustund þegar þau sáu út um gluggann nakinn hótelgest á Hótel Tjörnum í næsta húsi. Sveitarstjórn hefur brugðist við en vonast til að endanleg lausn finnist í málinu áður en starfsemi hótelsins hefst á ný í vor. „[
Hinn 8. september] varð það atvik í kennslustund hjá mér að nakinn fullorðinn maður var inni á hótelherbergi í beinni sjónlínu við kennslustofuna. Nemendur mínir urðu þar með vitni að nekt fullorðins hótelgests í miðri kennslustund,“ segir í bréfi sem Sigríður Árdal, umsjónarkennari 9. – 10. bekkjar í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit, sendi sveitarstjóra og sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í síðasta mánuði. Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnarinnar í síðustu viku en í kjölfar ábendingarinnar hafði sviðsstjóra fjölskyldusviðs verið falið að framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla til að koma til móts við athugasemdir kennarans. Sigríður segir atvikið hafa truflað kennslu og sett börnin í aðstæður sem þau eigi ekki að þurfa að upplifa í skólanum, en tekur þó fram að hún sé ekki að halda því fram að hótelhesturinn hafi vitað að börn sæju til hans eða að háttsemi hans hafi verið vísvitandi. Kennarinn krafði sveitarfélagið svara við því hvernig það samræmdist skyldum þess að reka skólastarf þar sem ókunnugir fullorðnir hótelgestir hefðu beina sjónlínu inn í kennslustofur barna og börnin hefðu að sama skapi beina sjónlínu inn í einkarými hótelgestanna. „Þetta mál,“ skrifar kennarinn, „verður ekki afgreitt með því einu að um óheppilegt tilvik hafi verið að ræða. Atvikið var fyrirsjáanleg afleiðing af því fyrirkomulagi að hótelherbergi og kennslustofur barna séu í beinni sjónlínu hvort við annað. Nú þegar áhættan af þessu fyrirkomulagi hefur raungerst ber sveitarfélaginu að bregðast við.“ Í fundargerð sveitarstjórnar segir að samkvæmt upplýsingum frá sviðsstjóra hafi verið brugðist við athugasemdum í samráði við skólastjóra. Einnig hafi greinargerð borist frá skólastjóra Stórutjarnaskóla þar sem farið væri yfir það sem gert hafi verið til að koma til móts við athugasemdir foreldra. Tjarnir hf., sem er að 22 prósentum í eigu sveitarfélagsins, rekur hótelbygginguna við hliðina á Stórutjarnaskóla. Hótelið er yfirleitt aðeins opið yfir sumartímann og af bókunarsíðum að dæma virðist hótelið nú hafa lokað fyrir almennar bókanir. Í fundargerð sveitarstjórnar er bókað að mikilvægt sé „að endanleg lausn liggi fyrir áður en starfsemi hótelsins hefst á ný á vordögum“.
Þingeyjarsveit Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira