Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Ökumaður var færður á sjúkrahús á Akureyri til aðhlynningar eftir árekstur bíls og traktors á fjórða tímanum í dag. Slysið varð á Fljótsheiði. Innlent 14.8.2026 17:14
Landrisi í Öskju er lokið Niðurstaða vettvangsvinnu í Öskju bendir til þess að landrisi þar, sem hófst árið 2021, sé lokið. Jafnfram eru vísbendingar eru um landsig á svæðinu. Innlent 14.8.2026 14:36
Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við vasaþjófum á þekktum ferðamannastöðum í sínu umdæmi. Innlent 14.8.2026 10:50
Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel „Ég fylgdi af því ég fæ gott að borða,“ segir Þóra Kolbrá Sigurðardóttir en eiginmaður hennar er listakokkurinn Völli Snær, fullu nafni Völundur Snær Völundarson. Þau hjónin hafa byggt upp ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra ásamt því að standa í fjölmörgum öðrum verkefnum. Lífið 26. júní 2026 11:41
Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við. Innlent 10. júní 2026 10:03
Ábyrgð náði hreinum meirihluta Á-listi Ábyrgðar náði fjórum mönnum kjörnum í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í dag. Listinn náði fjórum mönnum inn og þar með hreinum meirihluta. Innlent 17. maí 2026 02:23
„Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík, hefur samþykkt að vera sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit. Innlent 19. apríl 2026 10:10
Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Erlendur ferðamaður sem sagður var alvarlega slasaður eftir umferðarslys við Mývatn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi og betur fór en á horfðist. Bifreið sem hann var ekið út af hringveginum í erfiðum aðstæðum, lenti á þvervegi og tókst á loft. Innlent 14. apríl 2026 12:09
Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahúsið á Akureyri í kjölfar umferðarslyss á Hringvegi við Neslönd í Mývatnssveit klukkan 12.45 í dag. Innlent 7. apríl 2026 15:58
Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn Vetrarhátíð stendur yfir við Mývatn en á hátíðinni eru stundaðar fjölbreyttar vetraríþróttir úti í náttúrunni, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Meðal annars er keppt í hundasleðakeppni og hægt að keyra Gokart bíla á ís. Innlent 7. mars 2026 15:01
Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Innlent 25. febrúar 2026 08:08
Framhlaup hafið í Dyngjujökli Samkvæmt GPS-hraðamælingum Jarðvísindastofnunar Háskólans er framhlaup hafið í Dyngjujökli. Dyngjujökull er þekktur framhlaupsjökull og um 20 til 30 ár líða að jafnaði á milli framhlaupa. Hann hljóp síðast fram á árunum 1998 til 2000. Veðurstofan varar við ferðum á jöklinum. Innlent 19. nóvember 2025 14:17
Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Nokkur náttúruverndarsamtök hafa lýst yfir þungum áhyggjum og vonbrigðum vegna opnunar Vonarskarðs fyrir bílaumferð. Þau segja stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs ábótavant og ætla að leita til UNESCO vegna málsins. Innlent 30. október 2025 11:47
Heimilar umferð um Vonarskarð Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að heimila vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært. Innlent 24. október 2025 11:07
Færa Jarðböðin í nýtt hús og nýjan búning Jarðböðunum verður lokað í þrjá mánuði um áramótin á meðan framkvæmdir standa yfir við byggingu nýs hús. Jarðböðin munu taka upp erlenda heitið Earth Lagoon Mývatn en halda um leið íslenska nafninu Jarðböðin. Viðskipti innlent 8. október 2025 10:24
Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Gerður Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrrverandi sveitarstjóri, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, hefur þegar lokið störfum og Gerður tekin við. Innlent 26. september 2025 18:53
Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. Innlent 21. september 2025 07:03
Jarðskjálfti að stærð 3,7 í norðvestanverðri öskju Bárðarbungu Jarðskjálfti að stærð 3,7 mældist klukkan tíu í morgun í 0,7 kílómetrum norður af Bárðarbungu. Stórir skjálftar hafa mælst við Bárðarbungu reglulega síðustu mánuði. Innlent 4. september 2025 12:46
Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Húsvíkingi hefur verið falið að segja heiminum söguna af því þegar tveir frægustu landkönnuðir 20. aldarinnar héldu í leiðangur á Norðurpólinn. Örlygur Hnefill Örlygsson er nú, ásamt afkomendum brautryðjendanna, í fimmtán daga leiðangri á pólnum þar sem hann fangar sögu þeirra í heimildarmynd. Fréttastofa fékk að kíkja í heimsókn hjá pólfaranum á Húsavík áður en hann fór í reisuna miklu. Innlent 6. ágúst 2025 19:54
Mannmergð vildi sjá fyrsta konunglega breska gestinn Filippus prins ætlaði sér að eiga náðuga daga, renna fyrir lax og sjá eitthvað af náttúru þessarar forvitnilegu en fámennu eyjar lengst norður af Bretlandseyjum. Þar bjuggu bara 187 þúsund manns, í stærsta bænum Reykjavík bara 77 þúsund, en mannmergðin sem mætti honum, hvert sem hann fór, var hins vegar líkari því sem búast hefði mátt við í milljónaborg. Innlent 2. ágúst 2025 12:48
Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Tjaldsvæði víða á Norðurlandi, þar sem besta veðrinu er spáð um helgina, eru óðum að fyllast. Tjaldsvæðavörður í Vaglaskógi segir að brjálað hafi verið að gera í bókunum síðustu tvo daga og ljóst sé að margir ætli sé að elta góða veðrið um helgina. Innlent 31. júlí 2025 16:53
Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Meintur veðurbreytir er sagður hafa verið fluttur frá Bretlandi norður í land í tilefni af tónleikum Kaleo í Vaglaskógi um síðustu helgi. Markmiðið hafi verið að komast hjá rigningarveðri. Lífið 31. júlí 2025 15:30
Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Tónleikahátíð Kaleo fór fram með pompi og prakt í Vaglaskógi í gær. Kaleo héldu þar sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2015, en uppselt varð á tónleikana á örskotstundu. Lífið 27. júlí 2025 14:43
„Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Hreiðar Hreiðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir með ólíkindum hvað tónleikahátíð Kaleo í Vaglaskógi í gær gekk vel. Ekkert stórslys hafi orðið og önnur vandamál hafi verið minniháttar. Innlent 27. júlí 2025 11:44