Fótbolti

Zirkzee með sigur­mark en Klopp á­fram í brasi

Sindri Sverrisson skrifar
Joshua Zirkzee og Tijjani Reijnders glaðbeittir eftir mark Zirkzee í kvöld.
Joshua Zirkzee og Tijjani Reijnders glaðbeittir eftir mark Zirkzee í kvöld. Getty/Maurice van Steen

Manchester United-maðurinn Joshua Zirkzee tryggði Hollandi 2-1 sigur gegn Serbíu í kvöld í spennandi riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Lærisveinar Jürgen Klopp í þýska landsliðinu gerðu hins vegar markalaust jafntefli við Grikkland á útivelli.

Holland og Grikkland eru því með átta stig hvort á toppi riðilsins en Þýskaland með fimm stig og Serbía án stiga. Tvær síðustu umferðirnar verða spilaðar í nóvember en aðeins tvö efstu liðin komast áfram í 8-liða úrslit Þjóðadeildarinnar.

Teun Koopmeiners kom Hollendingum yfir á heimavelli í kvöld en Mihajlo Cvetković jafnaði metin á 35. mínútu.

Zirkzee kom svo inná sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks og skoraði sigurmarkið á 72. mínútu eftir sendingu frá Tijjandi Reijnders.

Í Grikklandi áttu gestirnir frá Þýskalandi mun fleiri skot og voru nær því að skora í leiknum en niðurstaðan varð engu að síður markalaust jafntefli. Uppskeran úr fyrstu fjórum leikjunum undir stjórn Klopp er því fimm stig hjá Þjóðverjum sem töpuðu óvænt heimaleiknum við Grikkland fyrir viku, 1-0.


Tengdar fréttir

Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri

Goncalo Ramos heldur áfram að láta ljós sitt skína eftir brotthvarf Cristiano Ronaldo og hann skoraði sigurmark Portúgals í 2-1 sigri á Noregi í kvöld.  Danmörk vann Wales 1-0 á útivelli í sama riðli.

Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila

Langri og mest krefjandi landsleikjatörn sem Heimir Hallgrímsson hefur þurft að takast á við lauk í Serbíu í kvöld þegar Írarnir hans gerðu 1-1 jafntefli við Ísraela í B-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×