Sport

Gómuð við gróft svindl í Ber­lín

Sindri Sverrisson skrifar
Abeeeer reyndist hafa sest á reiðhjól í Berlínarmaraþoninu en lét það ekki stöðva sig í að þykjasta hafa klárað hlaupið og birta af sér myndir úr hlaupinu.
Abeeeer reyndist hafa sest á reiðhjól í Berlínarmaraþoninu en lét það ekki stöðva sig í að þykjasta hafa klárað hlaupið og birta af sér myndir úr hlaupinu.

Kínverski áhrifavaldurinn Abeeeer hefur beðist afsökunar eftir að hún varð uppvís að grófu svindli í Berlínarmaraþoninu fyrir rúmri viku. Hún birti af sér myndir eftir hlaupið og hreykti sér af frammistöðu sinni í hlaupinu en hefur nú eytt myndunum.

Myndir náðust af Abeeeer þar sem hún fékk sér far með reiðhjóli eftir að hafa hlaupið um 38 kílómetra af maraþoninu, samkvæmt frétt The Independent.

Milltími hennar frá 35.-40. kílómetra í hlaupinu reyndist besti milltími hennar. Sérstök Instagram-síða tveggja ástralskra hlaupara sem vinna að því að góma áhrifavalda fyrir svindl í hlaupum, Official Marathon Time Integrity Unit, sýndi hver raunveruleg ástæða þessa góða millitíma í lokin var.

Abeeeer er með um 530.00 fylgjendur á samfélagsmiðlum og hreykti sér af því eftir hlaupið að hafa náð sínum besta tíma sem þrátt fyrir svindlið var 4:53,46 klukkutímar.

Íþróttavöruframleiðandinn Brooks hafði verið í samstarfi við Abeeeer og útvegað henni hlaupaskó og annan búnað en hefur nú slitið því samstarfi, beðist afsökunar og lofað að skoða betur ferlið á bakvið það hvernig hlauparar eru valdir.

Sjálf hefur Abeeeer einnig beðið fylgjendur sína afsökunar og viðurkennir að eiga sér ekki neinar málsbætur.

„Ég mun ekki reyna að verja þessa hegðun,“ skrifaði Abeeeer sjálf og viðurkenndi að hafa gerst sek um mjög mikinn óheiðarleika. Hún kvaðst hafa fundið fyrir slappleika í hlaupinu en sagði það ekki réttlæta svindlið og bætti við að hún væri með mikið samviskubit yfir því sem hún gerði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×