Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 6. október 2026 15:02 Við Íslendingar erum stolt af tónlistarfólkinu okkar, rithöfundunum, myndlistarfólkinu, leikurunum og öðru skapandi fólki sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Oft er þó látið eins og sköpunargáfan sé einfaldlega sjálfsagður eiginleiki Íslendinga og að öflugt lista- og menningarlíf verði til af sjálfu sér. En listafólk verður ekki til í tómarúmi. Árangurinn verður til í samfélagi sem gefur fólki rými, tækifæri og aðstöðu til að skapa. Kennarar, félagsmiðstöðvar, tónlistarskólar, æfingahúsnæði, menningarstofnanir og skapandi samfélög eru öll hluti af þeim jarðvegi sem gerir fólki kleift að finna hæfileika sína og þroska þá. Á bak við tónleikana, plötuna, sýninguna eða verkið sem við sjáum liggja oft mörg ár af æfingum, tilraunum, mistökum, samstarfi og vinnu sem fæstir sjá. Áður en leikari stígur á stórt svið þarf hann einhvers staðar að geta tekið fyrstu skrefin og áður en hljómsveit fyllir tónleikahöll þarf hún rými til að æfa. Þess vegna skipta innviðir fyrir skapandi greinar máli. Og það skiptir okkur öll máli. Hvernig væri Reykjavík án tónlistar, myndlistar, leikhúsa, bókmennta og alls þess skapandi starfs sem á sér stað á hverjum degi, oft langt frá sviðsljósinu? Tónlistarfólk í Reykjavík hefur verið á hrakhólum með æfingaaðstöðu eftir að Tónlistarþróunarmiðstöðin missti húsnæði sitt á Hólmaslóð í sumar. Verkefni á borð við Læti!, áður þekkt sem Stelpur rokka!, eru sömuleiðis í húsnæði sem er mjög ábótavant og listafólk hefur lengi kallað eftir fleiri aðgengilegum rýmum til sköpunar. Á fundi borgarstjórnar í dag lagði meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar því til að Reykjavíkurborg hefji formlegar viðræður um leigu á húsnæði að Grensásvegi 8 fyrir tónlistar- og menningartengda starfsemi. Húsnæðið er rúmir 940 fermetrar og þar gæti skapast sameiginlegur tónlistar- og menningarklasi með æfingaaðstöðu, rými fyrir minni tónleika og menningarviðburði, námskeið, fræðslu og þróunarverkefni. Í júlí óskaði meirihlutinn jafnframt eftir kortlagningu á húsnæði í eigu borgarinnar sem mætti nýta undir skapandi greinar og stendur sú vinna nú yfir. Stór hluti kostnaðar við Grensásveg yrði fjármagnaður með fjármunum sem borgin ver nú þegar til starfsemi á þessu sviði. Viðbótarkostnaðurinn er innan við fimm milljónir króna á ári, en húsnæðið gæti nýst mun fleirum en áður. Menningarhúsið við Grensásveg er því bæði góð nýting fjármuna og fjárfesting til framtíðar. Auður samfélags felst ekki aðeins í krónum, fasteignum og fjárfestingum. Hann er líka að finna í menningarlegum auð. Sá auður felst í sögunum sem við segjum, tónlistinni, tungumálinu okkar, hugmyndunum, hefðunum og nýsköpuninni. Hann verður til þegar fólk fær tækifæri til að skapa og deila sköpun sinni með öðrum. Borg án lista og menningar væri einfaldlega fátækari, einsleitari og litlausari. Reykjavík á að vera borg þar sem skapandi greinar fá að þrífast. Það gerir borgina ekki aðeins skemmtilegri að heimsækja heldur líka betri stað til að búa á. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarstjórn Tónlist Magnea Gná Jóhannsdóttir Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun