Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar 4. nóvember 2026 10:32 Þú étur ekki sömu kökuna fjórum sinnum Ef Bændasamtökin hefðu sent frá sér tölfræði um heildarframleiðslu á kjöti á Íslandi þá þætti eflaust sérstakt ef samtökin hefðu skilað af sér tölum um allt kjöt á landinu, líka hunda-, katta- og mannakjöt. Einhverjir hefðu sagt að þetta væru áhugaverðar upplýsingar en kannski ekki gagnlegar sem umræðugrundvöllur. Einhver prúðmenni gætu við þetta tilefni misst eitthvað út úr sér eins og: ,,Þið eruð nú meiru spóarnir!" Þannig varð mér við þegar Viðskiptaráð birti kort af Íslandi þar sem nánast hver einasta náttúruperla landsins er mæld og vegin sem virkjunarkostur. Á kortinu eru staðir sem eru jafn heilagir íslenskri þjóð og handritin og tungumálið. Þar má sjá friðuð svæði, Öskju, Dettifoss og Torfajökulssvæðið. Gott og vel, áhugaverð tölfræði - en af hverju? Viðskiptaráð tví-, þrí- og fjórtelur marga stærstu virkjunarkosti Íslands. Viðskiptaráð birtir Ísland eins og allsherjar orkuhlaðborð með ákalli um að rammaáætlun verði aflögð og sett verði stefna um að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi fyrir árið 2040. Mjög metnaðarfullt vissulega og lítur mjög faglega út. En Viðskiptaráð stígur yfir ,,mörk raunveruleikans" í greiningu sinni vegna þess að á korti þeirra má lesa að nýtanleg orka ,,virkjunarkosta" á Íslandi séu 85,2 teravattstundir. Það er mun hærri tala en ég hef áður séð. Ráðið gerir þau reginmistök að stærstu virkjunarkostir Íslands eru tvítaldir, stundum þrítaldir eins og Hólmsá en Skaftá slær öll met því hún er fjórtalin. Það er ekki hægt að virkja sömu fallhæð oftar en einu sinni. Dettifossvirkjun gegnum Arnardal og Helmingsvirkjun verða til dæmis ekki gerðar samtímis, þar má ekki leggja saman fjóra plús tvo. Auk þess ætlar enginn að virkja Dettifoss. Er það nokkuð? Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs svaraði gagnrýni minni í viðtali við Kvennablaðið: ,,Þegar kostir sem útiloka hver annan samkvæmt gögnum rammaáætlunar eru dregnir frá, til dæmis Helmingsvirkjun, standa eftir 82,5 teravattstundir. Talan í úttektinni, yfir 80 teravattstundir, stenst því. Það er rúmlega fjórföld raforkuframleiðsla Íslands í dag." Viðskiptaráð misreiknar sem nemur allri raforkunotkun Eistlands Þetta er enn og aftur rangt. Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig Viðskiptaráð ofmetur orkugetu innan rammaáætlunar um 8,3 teravattstundir. Þar skeikar nærri tveimur Kárahnjúkavirkjunum. Ofmatið í skekkjunni jafngildir árlegri raforkunotkun Eistlands en þar búa 1,4 milljónir manna. Þar að auki er ekkert mál að kokka upp hvaða tölu sem er um fræðilega nýtanlega orku. Með sömu nálgun gæti hvaða barn sem er teiknað upp 103.000 vindmyllur á Íslandi, eina á hvern ferkílómeter lands, fundið þannig uppsett afl upp á milljón MW og búið til fantasíu um hundraðfalda orkuframleiðslu. Þú þekkir ekki manneskju fyrr en þú skiptir með henni arfi Viðskiptaráði er ætlað að vera stefnumótandi afl og því er ætlað að vera tekið alvarlega. Grandalaus almenningur, latir stjórnmálamenn og fjárfestar sem ætla að taka snúning gætu lesið gögn Viðskiptaráðs, fengið ranghugmyndir og hlaupið með þeim yfir ,,mörk raunveruleikans". Þú þekkir ekki manneskju fyrr en þú skiptir með henni arfi segir máltækið og hún getur orðið óþekkjanleg þegar skipta á náttúruarfinum. Ef tvöfalda á orkuframleiðslu á Íslandi fyrir árið 2040 þá jafngildir það að öllum orkuframkvæmdum síðustu 100 ára yrði þjappað í eina sturlaða 14 ára maníu. Þá þyrfi að byggja eina Kárahnjúkavirkjun á rúmlega þriggja ára fresti næstu 14 ár. Fjárfesting í orkuinnviðum væri um 2000-2500 milljarðar miðað við kostnað á hvert MW í nýjum virkjunum. Síðan má spyrja að smáatriðum eins og hvað á að byggja á hinum enda raflínunnar? Hver þarf 2700 MW? Fjögur álver? Taka annan snúning á kísilverunum? Eitt 2000 MW súpergagnaver? Við verðum aldeilis hress þjóð ef okkur er ætlað að rífast um öll heiðarlönd, fossa og hverasvæði sem eftir eru óspillt á landinu og sundra endanlega þeim víðernum sem við eigum á hálendinu. Sársaukinn meðfylgjandi slíkum risaframkvæmdum væri ólýsanlegur. Gæði Íslands eru ekki aðeins dýrustu perlurnar í Öskju eða Kverkfjöllum heldur sjálf perlufestin. Fyrir flestum er það gamla heiðin, fjaran við bæinn, uppáhalds dalur eða dagleið á fjöllum. Það þyrfti að gera hjartastaði tugþúsunda Íslendinga upptæka í þágu hvers? Afnám rammaáætlunar myndi svipta meginþorra landsmanna réttinum til að hafa bein áhrif á stærstu ákvarðanir á Íslandi og lukkuriddurum verður sigað á hvern einasta hreppstjóra á landinu. Þá má spyrja sig um orðfæri í almennum samskiptum. Ummæli sem ég lét falla um skýrslu Viðskiptaráðs á X, fyrrum Twitter voru ekki út af öndverðum skoðunum sem ég leitast við að virða. Ummælin voru viðbragð við óvönduðum vinnubrögðum, fjórtalningu á orkukostum með skekkju á stærð við milljónaþjóð og makalausa tillögu þeirra um að aðeins virkjunarkostir yfir 600 MW eigi að fara fyrir Alþingi þegar ENGINN slíkur kostur er á landinu. Ummælin voru viðbrögð við sturluðu ákalli um tvöfaldaða framleiðslu á sama tíma og heilög svæði, löngu friðaðir kostir voru mældir upp á töfluna. Við lestur á orkukorti Viðskiptaráðs mætti halda að Fjallkonan væri loksins dauð en vandinn er sá að þeir bjóða til miklu stærri kjötveislu en mögulegt er. Þessi heild er öll fullkomlega galin og sorglegt að sjá það bakkað upp af öflugustu fyrirtækjum Íslands. Prófdómari hefði fellt skýrsluhöfunda, ritdómur hefði gefið henni hauskúpu. Ég gaf þeim einn apaheila. Ég get tekið heilann aftur en hauskúpan fær að standa. Eftir stendur að eina framlag Viðskiptaráðs til umræðunnar er einungis upplýsingaóreiða. Við erum stórþjóð í orkumálum og þurfum að taka góðar ákvarðanir en við eigum líka gimstein sem heitir Ísland sem okkur ber að varðveita. Skýrsla Viðskiptaráðs bendir til þess að þeir eru allt í senn. Ólæsir á orkukostina, ólæsir á náttúru Íslands en þeir eru líka ólæsir á viðskiptahliðina. Að hvetja til 2000 milljarða skuldsetningar og tvöföldunar á öllum orkuinnviðum og verksmiðjum á næstu 14 árum lýsir fullkomnu sambandsleysi við raunveruleikann og þarna er áhætta sem gæti kollsteypt orkufyrirtækjum okkar. Þeir eru algerir spóar og væri rétt af þeim að leiðrétta mistök sín og biðjast afsökunar opinberlega. Ég hvet forstjóra Ölgerðarinnar, Landsbankans, Icelandair og alla þá aðila sem fjármagna Viðskiptaráð, að kanna hvað er á seyði þarna innanhúss. Hver sá sem skilur, virkjunarkosti, náttúru eða fjármál getur séð að Viðskiptaráð hefur stimplað sig út úr umræðunni um framtíð orkumála á Íslandi. Höfundur er rithöfundur. Fylgigögn: Náttúrukort sem ég gerði til mótvægis við kort Viðskiptaráðs www.andrisnaer.is/kort Tafla um margtalda virkjunarkosti: Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andri Snær Magnason Umhverfismál Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun