Lífið

Eva Marie Saint er látin

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Eva Marie Saint varð 102 ára gömul.
Eva Marie Saint varð 102 ára gömul. Getty

Eva Marie Saint, leikkona og Óskarsverðlaunahafi, lést af náttúrulegum orsökum á heimili sínu. Hún var 102 ára.

Saint fæddist árið 1924 og steig fyrst á svið á meðan hún var í háskólanámi. Eftir námið flutti hún til New York og hóf að leika í útvarpsleikritum og sjónvarpi.

Eva Marie Saint vann Óskarsverðlaunin árið 1955 og var ólétt af syni sínum þega rhún tók á móti verðlaununum.Getty

Saint vann Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir fyrstu kvikmyndina sem hún lék í, On the Waterfront. Hlutverkið sem hún varð hvað þekktust fyrir var hins vegar hlutverk Eve Kendall í kvikmyndinni North by Northwest í leikstjórn Alfred Hitchcock.

Eftir að sú mynd kom út ákvað Saint að taka að sér færri hlutverk til að verja meiri tíma með eiginmanni sínum og börnum. Hún giftist Jeffrey Hayden leikstjóra árið 1951 og eignuðust þau saman tvö börn. Sonur þeirra fæddist tveimur dögum áður en hún tók á móti Óskarsverðlaununum. Þau hjónin voru gift í 65 þar til Hayden lést árið 2106.

Hún lék samt sem áður í fjölda kvikmynda og vann Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í People Like Us. Saint hélt áfram að leika þar til hún var komin á tíræðisaldurinn, meðal annars í kvikmyndinni Superman Returns sem kom út árið 2006.

Saint lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu í Los Angeles.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.