Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Lovísa Arnardóttir skrifar 7. október 2026 13:31 Guðný segir foreldra verða að afla sér upplýsinga um það sem börn þeirra eru að gera á netinu. Vísir/Bjarni Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hversu auðvelt sé að sækja og misnota myndefni sem þeir deili af börnum sínum. Sem dæmi sé vitað að myndbönd af börnum að borða og dansa séu vistuð oftar en önnur myndbönd.
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið fleiri frá því 2021. Í frétt fyrr í vikunni kom fram að tæplega helmingur brotaþola voru börn í öllum kynferðisbrotunum en einungis tíu prósent grunaðra voru undir átján ára. „Þetta er hræðileg þróun og það sem er erfitt að lesa úr þessari skýrslu ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot er að það er fjölgun í kynferðisbrotum gegn börnum,“ segir Guðný. Hún segir eflaust hluta af fjöldanum vegna aukinnar meðvitundar en fjölgun í stafrænum brotum megi rekja til gífurlegrar þróunar gervigreindar og tæknilausna síðustu mánuði og ár. „Þetta er ekkert ókunnugt okkur,“ segir hún og að það komi reglulega fréttir um að menn nálgist börn í gegnum spjallsíður á samfélagsmiðlum eða Internetinu og vísar til dæmis til „Snapchat-perrans“ Harðar Sigurjónssonar. Hún segir þetta umhverfi erfitt bæði fyrir börnin til að alast upp í en líka fyrir foreldrana til að fylgjast með. Hún hvetur foreldra til að skoða vel hvað er að gerast á raftækjum heimilisins. Það sé til dæmis haft samband við börn í gegnum Roblox. Verði að tilkynna til lögreglu Guðný segir vert að tilkynna til lögreglu hafi fólk vitneskju um að einhver hafi samband við barnið þeirra, þó svo að aðeins sé um skilaboð að ræða, því mögulega hafi það gengið lengra með öðru barni. Guðný segir mikilvægt að fræða börn um viðbrögð við slíkum skilaboðum en einnig að þau geti verið að búa til efni sem hægt sé að misnota lendi það í röngum höndum. „Það getur verið stórhættulegt. Það er þetta stafræna spor sem fylgir börnum,“ segir hún og að mikilvægt sé fyrir foreldra sem deila efni af börnunum sínum að hafa þetta í huga. Hún segir að erlendis sé það þannig að myndbönd af börnum að borða eða dansa séu vistuð oftar og það sé vísbending um að það sé verið að nota gervigreind til að búa til barnaníðsefni. „Við verðum að vera með á nótunum,“ segir Guðný og bendir á að það sé ekki alltaf hægt að bregðast við eftir á. Fólk verði að sækja sér fræðslu og það sé til dæmis hægt að gera það á vefsíðunni stoppofbeldi. Fjallað var um barnaníðsefni sem gert er af gervigreind á vef breska miðilsins Guardian fyrr í vikunni. Þar kom fram að gervigreindarefni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum breiðist hratt út á netinu og magn ólöglegs efnis sem rannsakað hefur verið á þessu ári sé þegar orðið meira en allt árið 2025. Greinendur hjá Internet Watch Foundation hafi fundið meira myndefni sem lítur út fyrir að vera raunverulegar ljósmyndir af barnaníð á fyrri helmingi ársins 2026 en allt árið á undan. IWF, sem hefur aðsetur í Bretlandi og fylgist með ofbeldisefni um allan heim, sagðist hafa metið 6.310 gervigreindarmyndir sem féllu undir lagalega skilgreiningu á barnaníðsefni, sem er 40 prósentum meira en heildarfjöldinn í fyrra, sem var rúmlega 4.500. Meirihluti myndanna sem greinendurnir sáu var af stúlkum og af börnum á aldrinum sjö til 13 ára. Nánar hér. Skipti ekki máli hvort að fólk deili á lokaðri síðu Spurð hvort það sé jafn hættulegt að birta í story eða á lokaðri síðu segir hún að alltaf sé möguleiki á því að einhver taki skjáskot og fólk viti aldrei af því. Slík skjáskot geti endað í spjalli án þess að það sé annarlegur tilgangur en í spjallinu geti verið einhver sem hafi eitthvað annarlegt í huga. Guðný segist reglulega tala við vini sína um þetta því að enda séu það ekki þau sem sitji uppi með þetta heldur börnin. Guðný segir svona efni geta lifað að eilífu og það sé mjög auðvelt að missa stjórn á því hvert svona efni fer. Það geti endað á síðum um allan heim og fólk viti aldrei hvort að myndefni af þeim sé allt í einu hluti af lögreglurannsókn í Singapúr. Guðný segir aldrei mega slaka á forvörnum og fræðslu en það sé mikilvægt að muna að nauðganir gerist ekki í tómarúmi. Til dæmis í máli sjömenninganna í Cornell-háskóla sé um að ræða menningu og það verði að skoða þetta í samhengi við vald og klámáhorf ungra drengja og manna. Klámið sé mikið vandamál „Klámið er risastórt vandamál,“ segir Guðný og að til þess megi til dæmis rekja tilkynningar um aukna notkun kyrkingartaka í kynferðisofbeldi og kynlífi ungmenna. Hún segir aftengingu á milli fólks og það verði að stemma stigu við þessu. „Klám er stórhættulegt konum og ofbeldi í klámi er normalíserað og við verðum að koma fólki í skilning um að það sé ekki sama sem merki á milli kynlífs og kláms.“ Hún segir að í átaki fjölda samtaka og heilsugæslunnar um kyrkingartak í sumar hafi þau til dæmis komist að því að strákar haldi að þeir eigi að vera að gera þetta og stelpur haldi að þær eigi að fíla þetta. Í klámi láti konur sig hafa ýmislegt og segi aldrei nei. Það gefi skakka mynd af því hvernig raunverulega er. Guðný segir fræðslu þarna lykilatriði og það verði að byrja snemma svo að börn og ungmenni þrói með sér gagnrýna hugsun og læri um mörk og einkastaði. Án þess sé líklegra að það sé brotið á þeim og ólíklegra að þau segi frá.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tækni Gervigreind Klám Kynbundið ofbeldi Hópnauðgun við Cornell-háskóla Tengdar fréttir Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar á milli ára en tilkynningum um ágreining á milli skyldra eða tengdra hefur fjölgað milli ára. Á tímabilinu var tilkynnt um 236 tilvik þar sem þolandi og gerandi tengdust fjölskylduböndum. Þar vóg þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik. 24. september 2026 13:23 „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola. 27. maí 2026 23:41 Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Karlmaður sem er grunaður um stórfellda líkamsárás sem beindist gegn sambýliskonu hans, nóttina eftir að hann hlaut dóm fyrir ofbeldi í garð hennar, þarf að sitja áfram í gæsluvarðhaldi, eða til fimmtudagsins 27. ágúst. 11. ágúst 2026 12:51 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar á milli ára en tilkynningum um ágreining á milli skyldra eða tengdra hefur fjölgað milli ára. Á tímabilinu var tilkynnt um 236 tilvik þar sem þolandi og gerandi tengdust fjölskylduböndum. Þar vóg þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik. 24. september 2026 13:23
„Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola. 27. maí 2026 23:41
Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Karlmaður sem er grunaður um stórfellda líkamsárás sem beindist gegn sambýliskonu hans, nóttina eftir að hann hlaut dóm fyrir ofbeldi í garð hennar, þarf að sitja áfram í gæsluvarðhaldi, eða til fimmtudagsins 27. ágúst. 11. ágúst 2026 12:51