Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 11:11 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri telur leigubremsuna „augljóslega mjög heimskulega“. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir henni ætlað að verja heimilin gegn stjórnlausum leiguhækkunum. Vísir Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra.
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, spurði hann álits á leigubremsunni og sagði standa til að „sjanghæja“ henni í gegnum þingið. Þar var vísað til frumvarps Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingar á húsaleigulögum. Samkvæmt því mættu reglubundnar hækkanir húsaleigu á samningstíma aðeins eiga sér stað á tólf mánaða fresti og ekki fara umfram hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Segir verðhömlur ekki leysa skortinn Í viðtali við fréttastofu að fundinum loknum segir Ásgeir að tilraunir til að leysa skort á markaði með verðhömlum hafi verið gerðar margsinnis. „Sú aðgerð að ætla að leysa vandamál skorts á markaði með því að með því að festa verðið, það er svona búið að reyna það mörgum sinnum síðustu aldirnar,“ segir Ásgeir. Hann segir það meðal þess fyrsta sem nemendur læri í grunnnámi í hagfræði að slíkt leysi ekki vandann. „Þú leysir ekki vandamál með því að með því að festa verðið með lögum eða einhverju slíku.“ Lausnin felist að hans mati í að auka framboð og liðka fyrir markaðnum. Spenna á fasteignamarkaði hafi að hluta stafað af of litlu framboði og fólksfjölgun, en nú sé staðan að breytast. „Núna erum við að sjá mikið umframboð á fasteignamarkaði,“ segir Ásgeir og telur markaðinn vera að komast í jafnvægi. Vonar að fallið verði frá henni Spurður hvort hann mælist til þess að ríkisstjórnin falli frá leigubremsunni svarar Ásgeir: „Já, ég bara vona það, þannig að ég tel að þetta gæti jafnvel gert illt verra, já, ég tel að þetta muni ekki vera til þess að lækka leiguverð þegar þarna er litið til lengri tíma.“ Ragnar segir bremsuna verja heimilin Ragnar Þór hefur sagt leigubremsuna eiga að verja heimilin gegn stjórnlausum hækkunum og óöryggi. Í framsöguræðu á Alþingi á mánudag lýsti hann henni sem sanngjarnri og málefnalegri aðgerð sem stöðvaði sjálfvirkar mánaðarhækkanir og yki fyrirsjáanleika fyrir leigjendur. „Það er jafnframt liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði haldi,“ sagði Ragnar í framsöguræðunni. Frumvarpið fór ekki í samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerð þess er sú ákvörðun skýrð með því að birting áforma og frumvarpsdraga gæti hvatt til leiguverðshækkana áður en breytingarnar tækju gildi. Lagt er til að reglurnar taki gildi 1. júlí 2027 fyrir nýja, endurnýjaða og framlengda leigusamninga. Þær myndu einnig ná til eldri samninga um íbúðarhúsnæði sem enn væru í gildi 1. júlí 2028.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Húsnæðismál Fasteignamarkaður Leigumarkaður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira