Leggur skóna á hilluna Valur Páll Eiríksson skrifar 7. október 2026 16:30 Pedro Rodriguez raðaði inn titlum með Barcelona. Nordic Photos / AFP Pedro Rodríguez, fyrrverandi leikmaður Barcelona, Chelsea, Lazio og spænska landsliðsins, hefur lagt skóna á hilluna 39 ára að aldri.
Pedro hefur verið án liðs síðan samningur hans við Lazio rann út í sumar. Hann tilkynnti á samfélagsmiðlum í dag að leikmannaferli hans sé lokið. Hann bindur þar með enda á sérlega sigursælan feril þar sem hann vann bæði HM og EM með spænska landsliðinu auk fjölda annarra titla með félagsliðum sínum. Pedro spratt fram á sjónarsviðið með Barcelona árið 2008, þá 21 árs gamall, eftir að hafa leikið fyrir B- og C-lið félagsins. Barcelona var þá við það að hefja eitt sigursælasta skeið í sögu félagsins undir stjórn Pep Guardiola. Pedro vann spænsku deildina fimm sinnum milli 2008 og 2015, spænska bikarinn þrisvar, Ofurbikarinn fjórum sinnum, Meistaradeild Evrópu þrisvar, Ofurbikar UEFA þrisvar og HM félagsliða í tvígang á tíma sínum í Katalóníu. Hann söðlaði um og hélt til Chelsea á Englandi og varð þar enskur meistari á öðru ári sínu í ensku höfuðborginni, vorið 2017. Hann vann einnig enska bikarinn og Evrópudeildina með Chelsea. Titlunum fækkaði þegar Pedro fór frá Lundúnum til Rómar árið 2020 en eftir eina leiktíð með Roma fór hann til nágrannana og erkifjendanna í Lazio hvar hann lék frá 2021 þar til í sumar. Pedro lék 65 landsleiki fyrir Spán frá 2010 til 2017 og skoraði í þeim 17 mörk. Hann vann HM með Spáni 2010 og EM árið 2012.
Spænski boltinn Ítalski boltinn Enski boltinn Chelsea FC FC Barcelona Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira