Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 9. október 2026 07:33 Góð menntun er ein mikilvægasta undirstaða samfélagsins og hefur afgerandi áhrif á lífskjör og lífsgæði okkar til framtíðar. Í Kópavogi ætlum við að fjölga kennurum í grunnskólum því við viljum tryggja að grunnskólarnir okkar hafi sterkan mannauð, öflugt faglegt starf og góðar aðstæður til að mæta þörfum allra nemenda. Við höfum ákveðið að veita leiðbeinendum í grunnskólum Kópavogs námsstyrk til að stunda kennaranám samhliða starfi. Með styrkjunum verður starfsfólki gert kleift að afla sér kennaramenntunar án þess að þurfa að velja á milli náms og starfs. Á móti kemur hollusta og stöðugleiki í starfsmannahaldi og skuldbindingu til að starfa við kennslu í grunnskólum Kópavogs að námi loknu. Þetta er mikilvæg fjárfesting í fólki. Kennarar og annað starfsfólk skóla gegna lykilhlutverki í námi og velferð barna. Því skiptir máli að skólarnir hafi aðgang að vel menntuðu og hæfu starfsfólki og að hlutfall kennaramenntaðra starfsmanna fari vaxandi á næstu árum. Þetta gerum við til að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu að kennaraskortur ríkir og hefur ríkt lengi. Aðgerðin er hluti af aðgerðapakkanum Framtíðin í fyrsta sæti, sem Kópavogur kynnti haustið 2025. Þar voru settar fram aðgerðir til að styrkja grunnskólastarf í Kópavogi. Markmiðið er skýrt: að skapa góðar aðstæður fyrir börn til að læra, þroskast og dafna og tryggja öflugt skólastarf til framtíðar. Með því að fjölga kennaramenntuðu starfsfólki styrkjum við faglegt starf skólanna og tryggjum um leið að börn í Kópavogi njóti góðs af öflugu skólastarfi. Fjölgun kennara í Kópavogi er fjárfesting í framtíð barna okkar og skólasamfélagsins í heild. Fyrir foreldra og nemendur snýst þessi aðgerð fyrst og fremst um að styrkja grunninn að góðu skólastarfi. Við höfum þegar góða reynslu af því að styðja starfsfólk til náms samhliða starfi í leikskólum Kópavogs. Þar hefur starfsfólki gefist kostur á að sameina nám og starf með góðum árangri en faghlutfall leikskólakennara er með hæsta móti í Kópavogi. Nú ætlum við að byggja á þeirri reynslu og þróa sambærilegar leiðir fyrir grunnskólana. Þetta snýst ekki aðeins um fjölda kennara. Menntun og fagþekking kennara hafa áhrif á gæði kennslu, námsárangur og getu skóla til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda. Sterkur hópur kennaramenntaðs starfsfólks skapar einnig betri grundvöll fyrir faglegt samstarf, þróun skólastarfs og stöðugleika í starfsmannahaldi. Þegar við fjárfestum í menntun starfsfólks erum við því ekki aðeins að fjárfesta í einstaklingunum sjálfum. Við erum að fjárfesta í skólunum, í börnunum og í samfélaginu okkar. Sterkt skólastarf verður ekki til af sjálfu sér. Það byggist á fólki með þekkingu, metnað og vilja til að skapa góðar aðstæður fyrir börn. Með því að gera starfsfólki kleift að stunda kennaranám samhliða starfi viljum við styrkja þann grunn. Framtíðin er í fyrsta sæti. Og framtíðin byrjar í skólunum okkar. Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun