Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar 9. október 2026 07:45 Enn á ný er körfuboltinn í Breiðholtinu á milli tannanna á fólki. Þessi skrif eru ætluð til þess að hjálpa þeim sem hafa ekki fylgst náið með málinu að mynda sér skoðun. Stutta útgáfan er: Aþena hefur tífaldað iðkendafjöldann á þremur árum. Aþena er að biðja um langtímasamning, byggðan á fyrri samningi félagsins, svo hægt sé að ráðast í frekari langtímauppbyggingu. Auk þess er engin nýbreytni að íþróttafélög reki íþróttamannvirki. Ég vil sjá langtímasamning sem gefur félaginu festu, skýra ábyrgð og svigrúm til að halda áfram. Borgin vísar til hagræðis og betri nýtingar, án þess þó að leggja fram neina útreikninga sem sýna ávinninginn. Og hvernig er yfirtaka rekstrarins betri leið að markmiðinu: að fleiri krakkar í Efra-Breiðholti stundi íþróttir? Lengri útgáfan er: Ég stýri framleiðslu á nýjum tölvuleik hjá Fenris Creations. Það er margt keimlíkt því harki og uppbyggingunni sem er í gangi í Breiðholtinu: að byrja á núlli, byggja upp teymi, markaðssetja á einn eða annan hátt til að fá þátttakendur, bæta aðstöðuna, fá sjálfboðaliða og aðra velunnara til þess að hjálpa til og þar fram eftir götu.Óvissa, púl og puð, hark, klúður og mikill lærdómur. Og við slíkar aðstæður þarf fólk svigrúm til að taka ákvarðanir og bregðast hratt við - ef ætlast er til að það beri ábyrgð á árangrinum.Hvað Breiðholtið varðar held ég að allir geti verið sammála markmiðinu: að fleiri krakkar í Efra-Breiðholti stundi íþróttir. Ef það er markmiðið, þá er spurningin hvort sé betra: að miðstýra eða leyfa þeim sem eru þessu næst að sjá um málin.Óháð hagfræðilegum eða pólitískum sjónarmiðum þá er miðstýring í eðli sínu ekki endilega slæm. Hún getur virkað vel í sumum tilfellum. En þegar verið er að byggja eitthvað upp frá grunni þurfa boðleiðirnar að vera einfaldar, ákvarðanirnar hraðar og ábyrgðin skýr. Aþena er einfaldlega að biðja um langtímasamning byggðan á þeim skammtímasamningi sem hefur verið í gildi síðastliðin þrjú ár. Fá fast land undir báða fætur svo hægt sé að byggja starfið áfram til framtíðar. Slíkur samningur væri engin nýbreytni, þar sem mörg íþróttafélög stýra sínu eigin húsnæði. Haldið þið að ÍR hafi samband við ÍBR eða Reykjavíkurborg til þess að breyta tímum hjá sér í Skógarselinu? Að geta stýrt húsinu gerir allt skilvirkara: ákvarðanir teknar hraðar, ábyrgð skýrari, boðleiðir einfaldar; allt sem auðveldar uppbyggingu starfsins. Borgin segir að Aþena fái áfram æfingatíma en skautar framhjá kjarna málsins: hvert er langtímaplanið fyrir uppbyggingu starfsins og hvers vegna er yfirtaka rekstrarins betri leið til að fjölga börnum í íþróttum en langtímasamningur við félagið? Aþena hefur einnig óskað eftir aðstöðu fyrir kennslu, fundi og aðstoð við heimanám - aðstöðu sem félagið hefur boðist til að byggja upp á eigin kostnað. Langtímasamningur á að tryggja félaginu bæði skýra ábyrgð og svigrúm til að skipuleggja þetta starf sem eina heild. Á þessum þremur árum hefur iðkendafjöldi tífaldast - og núna þegar innviðirnir eru að styrkjast (þjálfarateymi, foreldrar og aðrir sjálfboðaliðar sem vilja hjálpa til og krakkar sem eru búnir að læra helling og eru byrjaðir að draga vini sína á æfingar), þá er auðvelt að ná til enn fleiri barna. Í júní 2025 bókuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á fundi meðal annars: „Starfsemi Aþenu og Leiknis er öflug“. Jafnframt lýstu þeir vonum um að samningurinn myndi „auka enn frekar þátttöku í íþróttastarfi í Efra Breiðholti“. Markmiðið var því skýrt. Þegar óvissan um rekstrarsamninginn varð tilefni mótmæla tók Hildur (sem var þá í minnihluta) líka undir með stelpunum á samfélagsmiðlum: „Stelpurnar í Aþenu algjörlega geggjaðar, mættar að mótmæla á borgarstjórnarfundi en rekstrarsamningur við félagið hefur ekki verið endurnýjaður.“ Nú er Hildur sjálf borgarstjóri. Það er eitt að klappa fyrir stelpunum þegar þær mótmæla og annað að leysa málið þegar maður er sjálfur kominn með ábyrgðina. Stelpurnar þurfa ekki aðra stuðningsfærslu og félagið þarf ekki aðra fallega bókun. Það þarf festu til að halda starfinu áfram. Sjálfstæðisflokkurinn í eðli sínu trúir líka á einstaklingana en ekki miðstýringu - er það ekki? Þá hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvers vegna í ósköpunum sé betra að borgin taki yfir reksturinn en að semja til lengri tíma við fólkið sem hefur byggt starfið upp. Svo fer umræðan um Aþenu og uppbygginguna sem er búin að eiga sér stað alltaf að snúast um Brynjar. Og já, svo það sé sagt, þá er Brynjar ógeðslega kröfuharður og óheyrilega beinskeyttur í samskiptum. Ég kann sjálfur vel að meta fólk sem gerir miklar kröfur og segir hlutina beint, en skil líka að sá stíll henti ekki öllum. En árangurinn í Austurberginu talar sínu máli, og öllum er velkomið að kíkja í heimsókn og fá að upplifa þetta frábæra starf í stað þess að heyra sögur um þetta.En framtíð Aþenu á ekki að ráðast af því hvort fólki líkar við Brynjar. Að baki Aþenu er fullt af flottum foreldrum, öðrum bakhjörlum, þjálfurum sem eru spenntir fyrir áframhaldandi uppbyggingu og svo ekki sé talað um alla þessa grjóthörðu iðkendur sem mæta þarna daglega til þess að púla og puða. Að beina umræðunni alltaf að Brynjari gjaldfellir einfaldlega alla þrotlausu vinnuna frá öllum þeim sem hafa verið að byggja þetta starf upp.Markmiðið er skýrt: að fá fleiri krakka til að stunda íþróttir í Efra-Breiðholti. Þá er spurningin, óháð tilfinningum og sögusögnum, hvort sé vænlegra til árangurs: að treysta þeim sem eru vakin og sofin yfir þessu markmiði, eru þarna á hverjum degi og hafa sýnt fram á magnaðan árangur, eða þá að treysta á miðstýringu? Í vinnunni hjá mér myndi ég ekki bregðast við góðum árangri með því að færa ákvarðanirnar lengra frá fólkinu sem vinnur verkið. Hvers vegna ætti það að vera betri hugmynd í Breiðholtinu? Gefum fólkinu sem byggir starfið upp festu og svigrúm til að halda áfram - og metum starfið eftir því hversu vel því tekst að fá fleiri börn úr Efra-Breiðholti til að stunda íþróttir. Höfundur er tölvuleikjastjóri hjá Fenris Creations sem og þjálfari og leikmaður í körfubolta hjá Aþenu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Aþena Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun