Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar 9. október 2026 09:02 Láttu ekki snjallrassinn í vasanum stjórna þér. Finnst þér stundum eins og stafræni heimurinn sé farin að stjórna þér? Að síminn grípi athygli þína áður en þú nærð að klára heila hugsun? Að samfélagsmiðlarnir ráði hvað birtist á skjánum hjá þér? Að auglýsendur virðist vita meira um þig en þú hefur nokkurn tíma gefið upp? Flest þekkjum við þessa tilfinningu. Við lifum í heimi þar sem stafrænir miðlar eru orðnir órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar. Þeir auðvelda samskipti og opna aðgang að upplýsingum, en þeir gleypa líka athyglina og móta hegðun okkar og neyslu. Það er ekkert endilega rangt eða vont við það. En við ættum að vita hvernig þetta virkar, því þegar við skiljum ekki umhverfið sem við notum á hverjum degi er hætt við að það fari að stjórna okkur án þess að við tökum eftir því. Þegar talað er um miðlalæsi hugsa mörg um falsfréttir eða netöryggi. En miðlalæsi snýst ekki síður um að skilja hver birtir efnið sem við sjáum, hvers vegna ákveðið efni birtist okkur og hvernig persónuupplýsingar okkar eru nýttar. Á Borgarbókasafninu mætum við reglulega fólki sem leitar aðstoðar við allt frá stillingum snjalltækja og rafrænum skilríkjum til persónuverndar og öryggis á netinu. Sú reynsla sýnir að þetta er ekki sérhæft áhugamál fárra heldur færni sem skiptir fólk á öllum aldri máli. Þess vegna hefur Borgarbókasafnið hrundið af stað verkefninu Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi. Markmiðið er ekki að telja fólki trú um að snjallsímar eða samfélagsmiðlar séu vandamálið. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem hægt er að ræða áhrif tækninnar á daglegt líf og taka upplýstar ákvarðanir um eigin notkun. Sem ákveðinn upptaktur að Miðlalæsisviku síðar í mánuðinum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fullorðna. Fjallað verður um persónuvernd, gagnasöfnun, stafrænt öryggi og miðlanotkun með samtali, sköpun og samvinnu. Þá taka við reglulegir viðburðir, meðal annars vikuleg smiðja þar sem þátttakendur sauma Faraday-símasvefnpoka sem loka á net- og símasamband. Það er kannski óvenjuleg leið til að ræða tæknina, en markmiðið er að skapa rými fyrir samtal um stöðuga tengingu, athygli okkar og hvort það sé sjálfgefið að vera alltaf aðgengileg. Kannski þurfum við ekki að vera sítengd allan sólarhringinn. Bókasöfn eru ekki staður til geyma bækur. Þau eru staðir þar sem fólk les bækur og tekur þær heim, hittist, lærir, skapar og skiptist á hugmyndum. Þess vegna eiga bókasöfn líka erindi í umræðu um stafrænt líf. Við höfum ekki öll svörin. En við getum boðið upp á stað þar sem fólk getur komið saman, spurt spurninga og deilt reynslu sinni. Stað þar sem enginn þarf að vera sérfræðingur. Stað þar sem má segja: „Ég skil þetta ekki.“ Stað þar sem fólk hittist augliti til auglitis. Tæknin er ekki náttúrulögmál. Við getum haft áhrif á hvernig hún er notuð og hvaða hlutverki hún gegnir í samfélaginu. Ekki láta snjallrassinn í vasanum stjórna þér, því þótt síminn sé snjall þýðir það ekki að þú sért það ekki líka. Komdu frekar á bókasafnið, taktu þátt í samtalinu og skoðaðu með okkur hvernig við getum byggt upp meðvitaðra, gagnrýnna og mannlegra stafrænt samfélag. Þar sem tæknin þjónar fólki, en ekki öfugt. Höfundur er deildarstjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun