Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar 9. október 2026 10:00 Sif Sigmarsdóttir skrifar oft á tíðum ágæta pistla og sprettir gjarnan úr spori með skrifum sínum um allt og ekkert. Nú síðast gerir hún rekstur baðlóna að umtalsefni sínu og þá sérstaklega fyrirhugaða uppbyggingu í Hvammsvík. Allt er það gott og blessað nema hvað skrif hennar byggjast að hluta á rangfærslum og rangtúlkunum á staðreyndum. Í niðurlagi greinarinnar virðist hún jafnframt gera lítið úr þeirri gríðarlegu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í íslenskri baðmenningu undanfarin ár. Ég á reyndar erfitt með að átta mig á tilgangi greinarinnar en tel mig engu að síður knúinn til að leiðrétta nokkur lykilatriði. Í fyrsta lagi hefði Sif getað gefið sér tíma til að lesa viðtalið við mig í Morgunblaðinu, hlusta á mál mitt á ársfundi SA eða jafnvel viðtalið við mig á hennar eigin miðli, Bylgjunni, sem birtist á Vísi. Þá hefði henni orðið ljóst að við erum að endurskoða tímasetningu fyrirhugaðra framkvæmda í Hvammsvík fyrst og fremst vegna þeirrar miklu óvissu og óstöðugleika sem nú ríkir, bæði hér heima og erlendis. Við búum við háa stýrivexti, þráláta verðbólgu, vinnudeilur, hátt eldsneytisverð og hækkandi atvinnuleysi svo eitthvað sé nefnt. Allt þetta gerir stórar langtímafjárfestingar erfiðari. Þegar stjórnvöld hyggjast svo meira en tvöfalda virðisaukaskatt á baðlón, úr 11% í 24%, með svo skömmum fyrirvara, getur það hæglega orðið dropinn sem fyllir mælinn. Í öðru lagi tel ég slíka skattahækkun við núverandi aðstæður mikla skammsýni. Hærri skattprósenta tryggir ekki sjálfkrafa hærri skatttekjur til lengri tíma litið. Það þarf að horfa á heildarmyndina og áhrifin á fjárfestingar, atvinnusköpun og verðmætasköpun. Fyrir um áratug voru aðeins fjögur baðlón starfandi á Íslandi en nú eru þau orðin um 18 og enn fleiri verkefni á teikniborðinu. Fjárfest hefur verið fyrir tugi milljarða króna í glæsilegri uppbyggingu víðs vegar um landið. Þessi þróun hefur aukið gæði og fjölbreytni íslenskrar ferðaþjónustu, skapað störf og styrkt byggðir um allt land. Miklu skynsamlegra væri að leyfa þessari atvinnugrein að halda áfram að vaxa og dafna með tilheyrandi fjárfestingum, atvinnusköpun og auknum skatttekjum, fremur en að draga úr uppbyggingu hennar með skyndilegum skattahækkunum. Í þriðja lagi er vert að minna á að hefðbundnar sundlaugar landsins eru almennt undanþegnar virðisaukaskatti af aðgangseyri. Þær eru að einhverju leyti í samkeppni við einkarekin baðlón, en mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því. Sundlaugarnar gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Það er engu að síður eðlilegt að velta því fyrir sér hvers vegna stjórnvöld telji nú rétt að hækka skattlagningu á aðra baðþjónustu svo verulega og í því samhengi ansi langt seilst að líkja gagnrýni minni á skyndilega hækkun virðisaukaskatts í 24% úr 11% við kröfu um ríkisaðstoð við greinina. Að lokum vil ég taka fram að við fjölskyldan lítum á Hvammsvík sem langtímaverkefni. Það eru forréttindi að fá að byggja upp starfsemi í einstakri íslenskri náttúru og taka á móti bæði innlendum og erlendum gestum. Það hefur gengið vel og við erum afar þakklát fyrir þær frábæru móttökur sem Hvammsvík hefur fengið. Við höfum ekki greitt út arð úr félaginu heldur haldið áfram að fjárfesta í uppbyggingu staðarins. Mér finnst því bæði sérkennilegt og sorglegt ef umræðan er komin á það stig að gera lítið úr þeirri uppbyggingu sem frumkvöðlar og fjárfestar hafa staðið fyrir í ferðaþjónustu víðs vegar um landið. Það er auðvelt að sitja við lyklaborðið og skrifa pistla um hvernig eigi að skattleggja fjárfestingar annarra. Það er allt annað að leggja eigið fé að veði, taka áhættu, byggja eitthvað upp frá grunni og skapa störf og verðmæti fyrir samfélagið. Að því sögðu, Sif, ertu að sjálfsögðu alltaf velkomin í böðin í Hvammsvík! Skúli Mogensen. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun