Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar 9. október 2026 12:02 Sum börn þurfa að verða fullorðin áður en þau fá tækifæri til að vera börn. Þau læra snemma að lesa í svipbrigði foreldra sinna, finna fyrir spennu á heimilinu og átta sig á því hvenær best sé að hafa hljótt um sig. Þau vita kannski aldrei hvernig kvöldið verður þegar þau koma heim úr skólanum. Hvort mamma eða pabbi verði í góðu skapi, hvort rifrildi brjótist út eða hvort þau þurfi enn einu sinni að reyna að halda friðinn. Sum börn taka að sér ábyrgð sem þau ættu aldrei að þurfa að bera. Þau hugga foreldra sína, passa yngri systkini, sjá um heimilið eða reyna að koma í veg fyrir að aðstæður fari úr böndunum. Og stundum fær þessi hegðun jafnvel hrós. „Hún er svo þroskuð miðað við aldur.“ „Hann er svo duglegur að hjálpa til heima.“ En hvað ef þessi svokallaði þroski er ekki merki um að barninu líði vel, heldur afleiðing þess að það hefur þurft að taka of mikla ábyrgð of snemma? Það er mikilvægt að gera greinarmun á eðlilegri þátttöku barna í heimilishaldi og því þegar barn ber langvarandi ábyrgð á tilfinningalegri líðan eða velferð fullorðinna. Börn eiga að fá að hjálpa til, læra ábyrgð og taka þátt í fjölskyldulífinu. En þau eiga ekki að þurfa að vera stuðningsaðilar foreldra sinna, leysa úr ágreiningi fullorðinna eða bera ábyrgð á því að heimilið sé öruggt. Barn á ekki að þurfa að fórna eigin barnæsku til að halda fjölskyldunni saman. Þegar barn elst upp við áfengisvanda, ofbeldi, alvarleg veikindi eða langvarandi óöryggi getur það lært að setja þarfir annarra framar sínum eigin. Það getur orðið einstaklega næmt á líðan annarra, átt erfitt með að setja mörk og upplifað mikla ábyrgð á því að öllum í kringum það líði vel. Þetta á þó ekki við um öll börn sem alast upp við erfiðar aðstæður. Börn bregðast ólíkt við og stuðningur, örugg tengsl og jákvæð reynsla geta skipt sköpum. En við þurfum að vera vakandi fyrir þeim börnum sem virðast alltaf vera sterk, sjálfstæð og ábyrg. Stundum eru það einmitt börnin sem enginn hefur spurt hvernig þeim líður. Við þurfum að hætta að gera ráð fyrir að barn sem kvartar ekki sé barn sem þurfi ekki á aðstoð að halda. Við þurfum að muna að börn eiga rétt á öryggi, umhyggju, leik og því að fá að þroskast á eigin forsendum. Börn eiga að fá að vera börn. Þau eiga ekki að þurfa að vera fullorðna fólkið á heimilinu. Höfundur er uppeldis og menntunarráðgjafi og meistaranemi í félagsráðgjöf við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun