Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar 9. október 2026 12:17 Fyrir þau ykkar sem skiljið ekki meininguna með orðinu „þroskahömlun“, þá er verið að vísa til fólks sem er með þroskahömlun af einhverju tagi. Fólk sem er með þroskahömlun er t.d. oft lengur að læra suma hluti, en fljót/ur að læra aðra hluti. Ef orðið „þroskaheftur“ er notað, þá finnst viðkomandi sem er verið að tala um að það sé verið að tala niður til hans/hennar og það er aldrei fallegt. Að vera heftur á einhvern hátt er að geta lítið sem ekkert gert, sagt var að fólk væri fávitar eða vangefið.Orðið „þroskaheftur“ er líka enn notað í íslensku samfélagi á niðrandi hátt. Það er til dæmis oft notað þegar fólki finnst einhver gera eitthvað heimskulegt eða asnalegt. Þá getur maður heyrt fólk segja við aðra: „Ertu þroskaheft/ur?“ Þessi orð eru ljót og ég hef tamið mér að nota þau ALDREI. Við erum alveg jafn klár og aðrir Ég hef sjálf lent í því að orðið „þroskaheft“ var notað um mig af pabba mínum. Hann vissi að sjálfsögðu ekki betur og meinti þetta ekki þannig (hann er af gamla skólanum). En í eitt skiptið fékk ég nóg, skrifaði orðsendingu til pabba um að nota ekki þetta tiltekna orð og bað hann um að nota fallegra orðalag. Við sem erum með þroskahömlun, það þýðir ekki að við getum ekki gert neitt og við erum alveg jafn klár og aðrir. Ég er stolt af mér! Ég er t.d. með einhverfu og ég er STOLT af mér fyrir það. Ég er stolt af mér af því að ég er sú sem ég er og sú sem ég vil vera. Ég bý ein með páfagauk og fjórum dúkkubörnum. Ég á fallegt heimili og mér líður vel í íbúðinni minni. Ég geri handavinnu, er að læra á píanó, hef spilað á tónleikum. Ég spilaði á nemendatónleikum í Logalandi í Borgarfirði. Ég fæddist á Akranesi en er uppalin í Lundarreykjadalnum, á bænum Skálpastöðum. En ég bý á Akranesi og líkar það vel. Takk fyrir að lesa/hlusta. Ef þið viljið vita meira um lífið mitt geti þið horft á myndbandið Dagur í mínu lífi, sem Átak félag fólks með þroskahömlun gerði með mér. Höfundur er félagi í Átaki, félags fólks með þroskahömlun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun