„Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar 9. október 2026 14:02 Það hefur lengi legið ljóst fyrir að rafbílar eru með lægri rekstrarkostnað en sambærilegir bensín- og dísilbílar. Framan af var þó erfitt að fá góða heildarmynd af hagkvæmni fyrir neytendur þar sem samanburður var býsna flókinn. Rafbílar voru á sínum tíma talsvert dýrari í innkaupum og veggjöld voru einungis rukkuð í gegnum sértæk olíugjöld á dælu sem rafbílar borguðu ekki. Nú er myndin orðin mun skýrari þar sem kílómetragjald hefur tekið við af olíugjaldi á dælu. Þetta þýðir einfaldalega að allir bílar borga eins fyrir afnot af vegum og rekstur rafbíla nýtur engra ívilnana frá stjórnvöldum. Eins hefur verðþróun rafbíla þróast með þeim hætti að rafbílar eru í dag á svipuðu verði eða ódýrari en sambærilegir bensín- og dísilbílar. Það þarf ekkert lengur að pæla í hvað lægri rekstrarkostnaður rafbíla er lengi að borga upp verðmuninn við innkaup. Orkuverð Það eru fáar vörur hér á landi sem almenningur hefur jafngóða verðvitund fyrir og bensínlítrinn. Ótrúlega margir ökumenn geta sagt með lítilli skekkju hvað bensínlítri kostar hverju sinni og eru duglegir að leita upp ódýrasta lítrann. Með kílómetragjaldinu varð verðlagning örlítið skýrari þar sem lokaverð samanstendur nú einungis af heimsmarkaðsverði, kolefnisgjaldi, álagningu og virðisaukaskatti. Bensínverð er síbreytilegt en hér verður notað 250 kr/lítrann sem viðmið. Raforkuverð samanstendur af orkuverði, flutningi, dreifingu, jöfnunargjaldi og virðisaukaskatti. Sem sagt aðeins flóknari samsetning en hinsvegar miklu minni verðsveiflur en fyrir bensín. Fyrir rafbíla eru tvær megin leiðir til að kaupa raforku þ.e. í gegnum heimahleðslu og svo í gegnum hraðhleðslustöðvar þar sem raforkan er eðlilega dýrari. Hér verður notast við 25 kr/kWst fyrir heimilisrafmagn og 65 kr/kWst fyrir hraðhleðslustöðvar. Einfaldur samanburður Hvernig breytum við verði á kWst í verð á bensínlítraígildi, sem við skulum kalla raflítra, sem auðvelt er að bera saman við bensínverð? Jú, í einum bensínlítra eru nefnilega rétt tæplega 9 kWst af orku. Rafbílar eru hinsvegar um 3,5 sinnum orkunýtnari en bensínbílar. Ef við notum töluna 3,5 þá getum við breytt raforkuverði í raflítraverð með eftirfarandi formúlu: Raflítraverð = kWh-verð × 9 / 3,5 Þetta gefur 65 kr/lítrinn fyrir heimilisrafmagn og 167 kr/lítrinn fyrir hraðhleðslustöð. Þetta er í raun ekki samanburður á orkueiningum heldur akstursgetu. Raflítrinn sýnir einfaldlega hvað raforkan kostar miðað við sömu akstursvegalengd og lítri af bensíni myndi skila sem er auðvitað þjónustan sem þú ert raunverulega að kaupa. Ef við hugsum bara um bíla óháð orkugjafa sem kaupa lítra af orku til að keyra þá valið alveg augljóst. Ef bensínstöð myndi auglýsa verð á lítra sem væri 65 krónur eða jafnvel 167 krónur þá myndi biðröðin við þær dælur verða ansi langar. Með öðrum orðum kostar orkan til að keyra rafbíl yfirleitt aðeins fjórðung til tvo þriðju af því sem sambærilegur bensínbíll þarf í eldsneyti. Þótt hleðsla taki lengri tíma en bensín dæling þá er erfitt að finna dælu þar sem lítrinn kostar 65 krónur. Höfundur er sviðsstjóri á sviði orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Ingi Friðleifsson Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar