Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Kjartan Kjartansson skrifar 9. október 2026 14:34 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, sem vill láta meta áhættu af El niño á Íslandi. Vísir/Anton Brink Óvenjusterkur El niño-atburður í Kyrrahafi er líklegur til þess að hafa óbeinar afleiðingar á Íslandi. Loftslagsráðherra vill láta greina möguleg áhrif veðurfyrirbrigðisins á aðfangakeðjur og afhendaröryggi Íslands.
Gert er ráð fyrir einstaklega miklum veðuröfgum fram á næsta ár vegna fordæmalauss El niño í Kyrrahafi sem leggst ofan á hnattræna hlýnun sem menn valda með losun sinni á gróðurhúsalofttegundum. Frávik í sjávarhita í Kyrrahafi sem er notað sem mælikvarði á El niño-atburði hefur aldrei mælst eins mikið og í þessum mánuði. Náttúruhamfarir á borð við flóð, þurrka og gróðurelda eru taldar líklegar til þess að hafa veruleg efnahagsleg áhrif, til dæmis í formi uppskerubresta og truflana á framleiðslu og flutningsleiðir. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lagði fram minnisblað um möguleg áhrif El niño á Ísland á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í því segir að beinar afleiðingar verði litlar en líklegt sé að óbeinna afleiðinga verði vart hér, bæði á samfélag og efnahagslíf. „En umfang þeirra og birtingarmyndir eru enn háð[ar] verulegri óvissu,“ segir í minnisblaðinu. Vill meta áhættu fyrir verðlag og afhendingu vara Ísland sé berskjaldað gagnvart áföllum í aðfangakeðjum og gæti auk þess fundið fyrir röskunum á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Erfitt sé þó að afla upplýsinga um upprunalönd innfluttra aðfanga á Íslandi og því sé erfiðara að greina hættu sem steðji að henni vegna El niño hér en víða annars staðar. Því lagði ráðherrann til við ríkisstjórn að kallað yrði eftir fyrirliggjandi upplýsingum um aðfangakeðjur til Ísland sem kynnu að vera sérstaklega útsettar fyrir raski af völdum El niño. Hann vill einnig kanna hvort raunhæft sé að meta áhættu fyrir verðlag og afhendingaröryggi á grundvelli sviðsmynda um áhrif veðurfyrirbrigðisins. „Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið munu því á næstunni óska eftir slíkum upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Skattinum og verða stofnanirnar beðnar um að meta stöðu þekkingar á áhættu fyrir aðfangakeðjur í samstarfi við viðeigandi sérfræðinga,“ segir í minnisblaðinu.
Loftslagsmál Veður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira