Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar 9. október 2026 15:30 Það er auðvelt að tala um réttarríkið í hátíðarræðum. Um mannréttindi, réttláta málsmeðferð og þá grundvallarreglu að hver maður skuli teljast saklaus uns sekt hans hefur verið sönnuð. En hvað gerist þegar réttarkerfið sjálft verður að refsingu? Hvað gerist þegar maður þarf að verja árum af lífi sínu í að berjast gegn fölskum sakargiftum, með allt sitt undir: mannorðið, framtíðina, fjölskylduna, börnin sín? Og hvað gerist þegar málinu lýkur? Hver bætir honum árin sem hann missti? Hver endurreisir mannorð hans og hver ber ábyrgð þegar réttarkerfið hefur lokið störfum en maðurinn situr einn eftir með afleiðingarnar? Þrjú ár sem enginn skilar Í þrjú ár var ungur maður flæktur í kynferðisbrotasakamál sem lagði líf hans í rúst. Sama ár og málatilbúnaðurinn hófst var honum fæddur sonur. Fyrstu þrjú æviár barns eru ekki einhver ótilgreindur tími á dagatali. Þau eru einstakt skeið sem aldrei kemur aftur. Fyrstu orðin. Fyrstu skrefin. Fyrstu afmælin. Allir þessir hversdagslegu atburðir sem verða að sameiginlegum minningum foreldra og barna. Á meðan aðrir feður gátu notið þessara ára án þess að hafa sakamál hangandi yfir höfði sér þurfti þessi faðir að lifa við óvissu um framtíð sína. Hve mikla orku tók það frá honum? Hve mikinn tíma? Hve mikla gleði? Og hvað tók það frá barninu? Við tölum um réttindi barna og mikilvægi tengsla þeirra við foreldra. En hver gætir þessara réttinda þegar réttarkerfið sjálft raskar lífi fjölskyldu árum saman? Saklaus uns sekt er sönnuð — nema í augum samfélagsins? Sakleysisreglan er ekki skraut á vegg réttarsalar, heldur mikilvægasta vörn einstaklingsins gegn valdi ríkisins. En hún er furðulega brothætt þegar ásakanir um kynferðisbrot eiga í hlut. Það þarf ekki sakfellingu til að eyðileggja mannorð manns. Stundum nægir ásökunin sjálf. Sú staðreynd að maður hefur verið ákærður getur fylgt honum árum saman. Fólk hvíslar. Kunningjar fjarlægjast. Atvinnutækifæri geta horfið. Sambönd breytast. Og jafnvel þótt ákæruvaldið nái ekki fram sakfellingu getur grunurinn lifað áfram. „Það hlýtur nú eitthvað að hafa verið að,“ segir fólk. Þannig verður sakleysisreglan að orðum á pappír, á meðan samfélagið lætur eins og ákæra sé ígildi dóms. En ákæra er ekki sönnun um sekt. Og sýkna er ekki náðargjöf ríkisins. Vald án ábyrgðar? Ákæruvaldið fer með alvarlegasta vald sem ríkið felur nokkurri stofnun. Það getur sett af stað atburðarás sem kostar einstaklinginn aleiguna, heilsuna, mannorðið og bestu ár ævinnar. Þess vegna verður að gera meiri kröfur til ákæruvaldsins en allra annarra opinberra stofnana. Það er ekki nóg að segja að kerfið hafi einfaldlega unnið sitt verk. Þegar maður hefur þurft að verja sig árum saman gegn sakargiftum sem ekki leiða til sakfellingar verður samfélagið að spyrja hvort ákæruvaldið hafi metið sönnunargögnin rétt, hvort meðalhófs hafi verið gætt og hvort réttlætanlegt hafi verið að halda málinu til streitu. Vald án ábyrgðar er ekki réttlæti. Fórnarlömb sem enginn vill sjá Í opinberri umræðu um kynferðisbrot ræðum við stöðugt um mikilvægi þess að taka kærendur alvarlega, en réttindi sakborninga eru talin aukaatriði. Réttarríkið verður að geta gert hvort tveggja: að taka ásakanir alvarlega og jafnframt að vernda þann sem er sakaður gegn óréttmætri meðferð. Þetta er ekki mótsögn heldur grundvöllur réttlátrar málsmeðferðar. Sakborningur er líka manneskja. Hann á foreldra, maka, börn og framtíð. Hann hefur rétt til mannorðs og fjölskyldulífs, rétt til að verja sig og rétt til þess að ríkið gangi ekki lengra gegn honum en lög og sönnunargögn heimila. Hver greiðir reikninginn? Þegar sakamáli lýkur er hægt að loka málaskrá, en það er ekki hægt að loka þremur árum úr ævi manns. Enginn getur skilað föður fyrstu árum sonar hans. Enginn getur endurgert þær stundir sem óttinn, álagið og óvissan skyggðu á og enginn getur tryggt að maður sem hefur staðið í slíkum málaferlum treysti aftur fólki, stofnunum eða samfélaginu eins og áður. Við höfum stofnað kerfi þar sem ríkið getur beitt einstaklinginn gríðarlegu valdi. En þegar því valdi hefur verið beitt án þess að sakfelling fáist virðist ábyrgðin of oft hverfa inn í stofnanirnar. Hvað kostaði málið skattgreiðendur? Hvað kostaði það sakborninginn? Hver metur hvort málsmeðferðin hafi verið réttlætanleg? Og hvaða úrræði hefur einstaklingurinn til að fá raunverulegar bætur fyrir sannanlegt tjón? Þetta eru ekki spurningar sem réttarríki á að óttast, heldur spurningar sem réttarríki verður að svara. Réttlætið verður ekki mælt í fjölda ákæra Gæði ákæruvalds verða ekki mæld með því hversu marga einstaklinga það dregur fyrir dóm. Þau verða að mælast í fagmennsku, hlutlægni, vönduðu sönnunarmati og virðingu fyrir grundvallarréttindum þeirra sem ríkið ákveður að sækja til saka. Ákæruvaldið á ekki að vera andstæðingur sakbornings í hugmyndafræðilegri baráttu. Það á að þjóna réttlætinu.Oft felst réttlætið í því að ákæra ekki eða að láta mál niður falla þegar sönnunargögnin réttlæta ekki frekari málsókn, vegna þess að á bak við hvert málsnúmer er manneskja. Ungi faðirinn, sem var sýknaður af öllum – upplognum – ákærum eftir að hafa verið dreginn í gegnum forarpytt islenska femínista-kengúruréttarkerfisins, vildi ekkert fremur en að fá að vera góður faðir í lífi litla drengsins síns. Þrjú ár eru langur tími í lífi fullorðins manns. Í lífi þriggja ára barns eru þau heil ævi. Og þau ár fær hvorugur þeirra nokkurn tíma aftur. Höfundur er fjölmiðlafræðingur, mamma og amma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun