Innlent

Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Það mátti reyna.
Það mátti reyna. Vísir/Vilhelm

Tilkynnt var um árekstur þar sem ökumaður eins bílsins flúði vettvang og brunaði burt. Hann hafði þó ekki erindi sem erfiði með þessu uppátæki sínu því númeraplatan hans losnaði við áreksturinn og varð eftir á vettvangi.

Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. 

Hver eftirmál flóttans verða er ekki snert á í dagbókinni en bíllinn sem átti í hlut er allavega þekktur núna. 

Leiða má líkur að því að önnur númeraplatan sé enn þá föst við bílinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×